Beint í efni

Málarahvítt

Málarahvítt
Málarahvítt er einn af okkar elstu litum og hefur verið til hjá okkur í yfir 35 ár. Málarahvítt var blandaður upprunalega fyrir málara því málarar vildu alls ekki mála með alveg hvítu. Hér áður fyrr notuðu allir málarar þennan lit.
  • Loft eru alltaf máluð á undan veggjum, svo ekki fari málning á nýmálaða veggina.
  • Loft eru oftast höfð ljósari en veggir. Þannig skynjum við herbergi stærri og rýmri.
  • Aukin gljái gerir misfellur á yfirborði meira áberandi. Mött málning felur misfellur betur en gljáandi.
  • Ekki er ráðlagt að mála loft með hærra gljástig en 5. Á veggi í herbergjum og stofu er hægt að nota meira t.d. gljástig 10-20.
  • Í eldhúsi og baðherbergi er mælt með enn hærra gljástigi, t.d. Akrýl 25 eða 85 málningu. Hún er með sveppa- og mygluvörn.
  • Augað skynjar liti mismunandi eftir gljáa, og mattari málning gefur ljósari tón.
  • Litir virðast sterkari á stórum flötum.
  • Lýsing hefur áhrif á liti.
  • Litaprufur geta verið afar hjálplegar við val á litum. Hægt að fá litlar handhægar litaprufur í öllum litum og prófa hinar og þessar litasamsetningar.
  • Ekki er allt sem sýnist í litakortum eða tölvuskjám. Fersk litaprufa af litnum gefur raunverulegustu myndina af litnum.
  • Byrjið ekki á nýrri málningardós á miðjum vegg.
  • Rétt hitastig (15-20 °C) og rakastig (40-70 %) skipta máli hvernig til tekst.
  • Lesið vandlega á dósarmiða áður en vinnan hefst.