Leita
Forsíða > Vöruleit > Málningarsprautur - Spíssar
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Vöruleit
Málningarsprautur
Tegundir
Spíssar
Góð ráð
Vöruyfirlit húsadeildar
Vöruyfirlit skipa- og iðnaðardeildar
Tækniupplýsingar
Öryggisleiðbeiningar
Myndlistarvörur
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Ráðleggingar við sprautun. Ending spíssa. Heimasíða GRACO.

 

Málningarsprautur

Spíssar og fylgihlutir

Þar sem loftlausar sprautur eru hannaðar með háan þrýsting í huga er mikilvægt að nota bara hluti í sprautur sem eru hannaðir til að þola þrýstingin sem unnið er með. Í stuttu máli þá þurfa allir hlutar sprautunnar þurfa að þola hámarks þrýsting! Hér á eftir er stutt umfjöllum meðal annars um spíssa og slöngur.

Spíssar

Það er nauðsynlegt að hafa réttu gerð af spíssum við sprautun. Spíssar ákvarða meðal annars...

  • Flæði.
  • Þrýsting.
  • Sprautuáferð.

Spíssinn þarf meðal annars að hafa réttu víddina til að sprautan nái að skammta rétt magn af málningu á flötinn. Einnig skiptir máli að hafa rétt geislahorn. Þar mætti nefna að lítil horn eru hentugt til sprautunar á litlum og tiltölulega flóknum yfirborðum til að tryggja áferð og minnka þurrúða. Slík horn tryggja að sama skapi ekki afköst við sprautun á stórum og heilum flötum.

Ólíkir spíssar hafa mismunandi eiginleika. Dæmi um þetta er að stærra spíssaop eykur málningarflæði og stærri geislahorn gefur stærri sprautugeisla.

Hjá Graco þá gefur hluti af vörunúmerinu til kynna gerð spíssins. Til dæmis má lesa úr númerinu 523 að spíssinn hefur 50 ° sprautuhorn og víddina 0.023".

Hvenær á að skipta um spíss?

Spíss slitnar Þegar málning fer í gegnum hann. Hversu hratt fer eftir þeirri málningartegund sem notuð er hverju sinni. Spíssinn slitnar hraðast fyrst eða fyrstu 100-200 l fyrir venjulega málningu og flestar tegundir af spíssum eru orðnir útslitnir eftir 300-500 l.

Slitinn spíss getur valdið því meðal annars að flæði eykst og vídd geisla minnkar og eykur þar emð efnisnotkun. Jafnframt eykur slitinn spíss líkur á misþykkri og ójafnri filmu. Þar af leiðandi getur það skipt talsverðu máli að skipta um spíss í tíma. Í eftirfarandi töflu má sjá dæmi um hvernig málningarflæði eykst og geisli minnkar þegar 0,015" (515) spíss slitnar.

 

Stærð spíssaops

[tommur]

Vídd geisla

[cm]

Flæði

[l/min]

Nýr spíss
0,015
33
0,9
Slitinn í
0,017
28
1,15
Slitinn í
0,019
23
1,5
Slitinn í
0,021
14
1,8

 

Slöngur

Nokkur atriði varðandi slöngur...

  • Mikilvægt er að nota alltaf slöngur sem þola þann þrýsting sem á að vinna með!
  • Þrýstingstap er minna hjá slöngum með stórt þvermál heldur en lítið.
  • Til að gera stóra slöngur þægilegri og meðfærilegri til vinnslu er oft settar notaðir stuttir og grannir slöngubútar (,,whip hose").

Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255