Tækniupplýsingar
Í vörutækniupplýsingum Slippfélagsins er meðal annars hægt að finna nákvæma lýsingu á vöru, og notkunarsviði. Upplýsingar eru gefnar miðað við 1 bars loftþrýsting, 20-25 °C lofthita og þá þurrefnisþykkt sem getið er. Ef um frávik frá þessu er í tækniupplýsingunum er þess sérstaklega getið.
Í tækniupplýsingum er meðal annars komið inn á...
-
Liti og litakerfi, þ.e.a.s. hvaða litir eru í boði eða í hvaða litakerfum er hægt að lita eftir. Þar mætti til dæmis nefna NCS og RAL litakerfi.
-
Gljástig. Gefið sem Gardner 60 eða sem matt (gljái < 15), hálfmatt (gljái 15-30), hálfgljáandi (gljái 30-60), gljáandi (gljái 60-90) eða hágljáandi (gljái > 90).
-
Efnisnotkun. Gefið er upp hvað líter þekur miðað við gefna þurrfilmuþykkt.
-
Eðlisþyngd sem kg/líter. Ef um er að ræða tveggja þátta málningu er eðlisþyngdin gefin upp miðað við að búið sé að blanda saman stofni og herði.
-
Rúmmálsþurrefni málninga, þ.e. það rúmmálhlutfall efnis sem gufar ekki upp. Fundið samkvæmt ISO 3233/ASTM D 2697.
-
Þurrktíma, þ.e. sá tími þar sem ryk festist ekki við filmuna (samkvæmt ISO 1517) og yfirmálunartíma, þ.e. hvenær má mála yfir.
-
Notkunartími, þ.e. sá tími sem hægt er að nota tveggja þátta efni, þegar búið er að blanda saman stofni og herði.
-
Blöndun herðis og stofns í rúmmálshlutföllum.
-
Þynna og áhaldahreinsa. Einnig er að finna upplýsingar um hámarks þynningu. Athugið að þynning getur haft veruleg áhrif á eiginleika vöru.
-
Verkfæri og áhöld við vinnslu. Spíssastærð loftlausra sprautu er gefin upp í tommum og þrýstingur í börum.
-
Umbúðastærðir og pakkningar. Gefnar í lítrum.
-
Helstu undir- og/eða yfirmálningarefni. Leitið nánari upplýsinga hjá starfsmönnum Slippfélagsins.
-
Vinnutilhögun og athugasemdir, og ýmislegt þar af lútandi. Oft er vitnað í staðla eins og ISO 8501-1:1988 fyrir handhreinsun og sandblástur á stáli, ISO 8503 fyrir hrjúfleika stáls og NACE No. 5/SSPC-SP 12 fyrir vatnsblástur á stáli. Einnig er að finna hagnýt atriði, eins og lágmarks yfirborðshita og vinnsluhita og að ekki skuli mála yfirborð sem eru kaldari en +3 °C miðað við daggarmark.
-
Varúðarsetningar og hættusetningar.
Önnur gögn um efnin er hægt að nálgast hjá starfsmönnum Slippfélagsins. Athugið að lesa og skoða vandlega allar tækni- og öryggisleiðbeiningar um öll málningarefni áður en öll vinna með efnin hefst.
|