| Umhverfismál
Slippfélagið í Reykjavík framleiðir og býður vörur með mikil gæði til að fegra og vernda hluti og mannvirki. Jafnframt er lögð á það áhersla að þróa og finna vörur og framleiðsluaðferðir sem hafa sem jákvæðust áhrif á umhverfi og öryggi. Við reynum ævinlega að miða viðskiptahætti okkar við að benda viðskiptavinum okkar á bestu leiðirnar varðandi umhverfis- og öryggismál.
Við viljum leggja okkar af mörkum til að tryggja öryggi og skapa gott umhverfi.
Umhverfisstefna
Slippfélagið í Reykjavík var eitt fyrst íslenskra fyrirtækja til að setja sér sérstaka stefnu í umhverfismálum. Í daglegum rekstri er reynt eftir fremsta megni að uppfylla stefnu félagsins í umhverfismálum. Það er meðal annars gert með að skipta út hættulegum efnasamböndum og síðast en ekki síst með ráðgjöf til viðskiptavinar. Dæmi um það sem hefur áunnist á undanförnum árum er stóraukin notkun umhverfisvænna vatnsþynnanlegra málningarefna.
Grænt bókhald er síðan notað sérstaklega til að meta hvernig til tekst hverju sinni.
Umhverfisstefna Slippfélagsins í Reykjavík.
Grænt bókhald
Samkvæmt reglugerð nr. 851 frá 25. nóvember 2002 er málningarframleiðendum skylt að halda grænt bókhald frá og með árinu 2003. Slippfélagið í Reykjavík heldur slíkt bókhald og hér er birt skýrsla úr þessu bókhaldi. Í þessum skýrslum um grænt bókhald má finna upplýsingar um starfssemi málningarverksmiðjunnar og þá þætti sem hafa áhrif á umhverfið. Mætti þar m.a. nefna upplýsingar um notkun hráefna, vatns, orku og pappírs, ásamt því sem fellur til við framleiðslu, líkt og úrgangur, spilliefni, uppgufun lífrænna leysiefna o.s.frv.
Öryggisleiðbeiningar og flutningsslysablöð
Slippfélagið í Reykjavík hefur gagnagrunn með ítarlegum öryggisleiðbeiningum fyrir allar söluvörur og hráefni félagsins. Í öryggisleiðbeiningum er m.a. innihaldslýsing og umfjöllun um þær hættur sem geta stafa af efnum og hvernig eigi að bregðast við þessum hættum. Slippfélagið hefur jafnframt fengið viðurkenningu frá Vinnumálastofnun fyrir þessar öryggisleiðbeiningar.
Einnig leggur Slippfélagið metnað sinn í að ADR flutningsslysablöð fylgi með vörusendingum frá fyrirtækinu.
|