Leita
Forsíða > Skipa- og iðnaðardeild > Greinasafn > Útleiðsla í skipum
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Eftirlit - FROSIO
Undirbúningur
Málningarkerfi
Ýmsar greinar

Almennt um tæringu

Botnmálning Hempels Globic
Eldhúð - svart stál
Trefjabotns- málningin er bylting
Yfirborðsmeðferð stáls
Vatnsblástur - vinnulýsingar
Útleiðsla í skipum
Húsadeild
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Botnmálning.
Daggarmarks- útreikningar.
Skipa- og iðnaðardeild

Útleiðsla í skipum

Útleiðsla rafmagns veldur oft blöðrum, flögnun eða pittum í skipsbotnum. Hún myndast þegar rafmagn leiðir í málminn frá, t.d. suðuvinnu, ljósum eða rafmagnstækum sem leiða út. Slíkir straumar eru mjög reikulir og leita að auðveldustu leið með minnsta viðnámi. Ef straumur er nægjanlega mikill getur hann skemmt málningarfilmu á skipsskrokki. Straumur getur gert stál að annað hvort anóðu eða katóðu. Ef straumurinn gerir stál katóðískt, þá styrkist stálið en málningarfilma getur misst viðloðun vegna vetnis- og hydroxýð myndunar og bólumyndun getur átt stað. Aftur á móti ef straumurinn gerir stálið anóðískt þá getur málmurinn tærst og pittir komið fram. Oft koma skemmdir ekki fram fyrr en löngu eftir að útleiðslan átti sér stað og hefur e.t.v. verið lagfærð. Hér sjást efnahvörf sem eiga sér stað hjá anóðu og katóðu við útleiðslu.

Útleiðsla við anóðu
Við anóðu tærist málmurinn og tæringarpittur getur myndast. Rafeindir streyma frá anóðu og straumur í öfuga átt.
 
Útleiðsla við katóðu
Við katóðu myndast vetni og hydroxýjón, sem gefur hátt pH gildi. Slík myndun getur veikt málningarkerfið og myndað bólur hér og þar í málningarfilmunni. Rafteindir streyma að katóðu og straumur í öfuga átt.

Það er því mikilvægt að vera á verði varðandi útleiðslu og þá sér í lagi ef um er að ræða rafvinnu þegar skip eru í landi. Aftur á móti er ólíklegt að útleiðsla í sjó eigi sér stað úti á rúmsjó, vegna fjarlægðar við land og viðnám sjávar er orðið of mikið til að straumur nái að leiða.

Hringlega útleiðslumynstur getur komið fram við öfluga útleiðslu. Oft er hægt að þekkja útleiðslubólur við katóðu á því að vökvinn inni í þeim hefur tiltölulega hátt pH gildi. Sjá bláan pH pappír á mynd.

Útleiðsla vegna suðuvinnu

Algengt er að skemmdir vegna útleiðslu geta komið út frá ýmis konar suðuvinnu í landi, t.d. ef bakkapall afkastar ekki nægjanlega. Hér að neðan eru nokkrar skýringarmyndir af algengu útleiðslu tilvikum.

Hér má sjá tæringu af völdum suðuvinnu með öfugum pólum og skipið verður anóða. Rafeindir streyma frá anóðu (skipsskrokk) og stálið tærist.
 
Hér má sjá blöðrumyndun á katóðu (skipsskrokk) vegna suðuvinnu með réttum pólum. Rafeindir streyma að skipsskrokk og myndun vetnisgass og hydroxýjóna á sér stað við katóðu. Vegna myndun hydroxýjóna mælist pH vera hátt í bólum.
 
Blöðrumyndun getur myndast á skipshlið sem vísar frá raftæki út af staðsetningu jarðtengingu.
 
Tæring og blöðrumyndun getur átt sér stað á skipsskrokki sem er nálægt skipi, þar sem suðuvinna á sér stað.
 
Tæring getur átt sér stað á skipi sem liggur nálægt skipi sem er varið með katóðskri vörn.

Eins og sjá má á þessum myndum geta orsakir útleiðsluskemmda verið flóknar og erfiðar viðfangs.

Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255