Skipa- og iðnaðardeild
Almennt um tæringu
Nokkur atriði um "hefðbundna" tæringu í andrúmslofti.
Til að tæring eigi sér stað þarf anóðu, katóðu, raflausn og raftengi. Hefðbundna tæringu á stáli er hægt að lýsa á eftirfarandi máta.
- Anóða er staður sem tærist og gefur frá sér rafeindir (e-).
- Katóða er staður sem styrkist og tekur til sín rafeindir.
- Raflausn er upplausn þar sem tæring og jónaflutningur á sér stað. Upplausnin getur verið vatn og sölt, t.d. sjór.
- Raftengið er sjálfur málmurinn þar sem rafeindir geta ferðast á milli anóðu og katóðu.
- Rafeindir fara á milli anóðu og katóðu og tæring á sér stað í upplausninn.

Meðal þátta sem hafa áhrif á tæringu
- Styrkur súrefnis - Aukin styrkur eykur tæringu.
- Mengun - Sum efni eru mjög tærandi.
- Hitastig - Aukin hiti eykur tæringu.
- Sýrustig - Lágt sýrustig er tærandi en hátt verjandi.
- Rakastig - Meiri raki gefur meiri tæringu.
- Selta - Aukin selta eykur tæringu.
Málning ver á þrjá mismundandi vegu, þ.e.a.s. með þykktarvörn, hindrandi vörn og galvanvörn.
|