Leita
Forsíða > Skipa-og iðnaðardeild > Undirbúningur > Verkfæri
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Eftirlit - FROSIO
Undirbúningur
Þvottur
Hreinsun
Verkfæri
Málningarkerfi
Ýmsar greinar
Húsadeild
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Botnmálning.
Daggarmarks- útreikningar.
Skipa- og iðnaðardeild

Verkfæri við málun

Algengustu málningarverkfærin eru pensla, rúllur og loftlausar sprautur. Notkun þeirra skiptir miklu máli varðandi áferð og hversu vel hægt er að væta flötinn með málningu. Slippfélagið býður upp á flestar gerðir af verkfærum, þar á meðal málningarsprautur frá GRACO.

Penslar

Pensill er öflugt en tiltölulega afkastalítið verkfæri miðað við rúllur og sprautur. Með pensli er hægt að þrýsta málningu vel inn í yfirborð og ná málningu inn í sprungur, holur og önnur erfið svæði. Pensill er m.a. nauðsynlegt verkfæri til að nota á horn, brúnir, suður, bolta, skrúfur o.þ.h. við málningarsprautun.

Nokkur atriði um notkun pensla

  • Hentar við lítil verk, þar sem erfitt er að koma við rúllu eða sprautu.
  • Hætta er á pensilförum.
  • Erfitt er að ná meiri blautfilmuþykkt en 100 mikron í umferð.
  • Þumalputtaregla segir að 50 mikron þurrfilma er hámarks þykkt í umferð.

Rúllur

Það er fljótlegra að rúlla en að pensla. Rúlla nær hins vegar ekki eins góðri vætingu og pensill og getur tekið loftbólur inn í filmuna. Yfirleitt er því ekki mælt með því að rúlla grunna eða fyrstu umferðir. Aftur á móti er rúlla einfalt og þægilegt verkfæri, t.d. við endurmálun og þess háttar.

Rúlla gefur talsvert lægri filmuþykkt en pensill og erfitt er að ná meiri blautfilmuþykkt en 75 mikron í umferð. Þumalputtaregla segir að 35-40 mikron er hámarks þurrfilmuþykkt sem hægt er að ná með rúllu. Því þarf að gæta sérstaklega að filmuþykktum ef rúlla er notuð.

Málningarsprautur

Loftlausar sprautur eru mjög afkastasamar og gefa góða filmu. Gæta verður þó að þurrúða og að rétt filmuþykkt náist. Góður árangur næst með að pensla erfið svæði, eins og horn og brúnir. Slippfélagið er umboðsaðili fyrir GRACO sprautur.

Mikilvægt er að mála brúnir og horn með pensli við sprautun. Þannig er hægt að tryggja nægjanlega filmuþykkt á slíkum svæðum.

Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255