|
Skipa- og iðnaðardeild
Þvottur
Mikilvægt er að fjarlægja öll óhreinindi eins og fitu og olíu, sem geta skert viðloðun málningar við yfirborðið. Þvottur með olíuhreinsi er í flestum tilvikum tiltölulega ódýr aðgerð sem getur tryggt margfalda endingu málningarkerfis. Hreinsiefni hjálpa til við að fjarlægja eða losa um alls konar óhreinindi. Nauðsynlegt er skola flötinn vel með hreinu vatni og fjarlægja óhreinindin sem hafa losnað og sápuleifar. Notkun vatns er einnig mikilvæg til að fjarlægja ýmis konar vatnsþynnanleg sölt, sem geta m.a. valdið osmósis og valdið bólumyndun. Háþrýstiþvottur hentar í flestum tilvikum illa til að fjarlægja fitu og olíur, en vel til að fjarlægja önnur óhreinindi.

Málning getur haft góða viðloðun við rykkorn, sem aftur á móti hafa ekki viðloðun við yfirborðið. Olía og fita mynda örfínt lag, sem hindrar málningu að komast að yfirborðinu til að tryggja viðloðun. Ef málað er yfir slíkt getur málningarvinna gott sem talist ónýt. Auðvelt getur verið að fletta málningunni í burt og viðloðun er engan veginn nægileg. Til að leiðrétta slíkt er nauðsynlegt að fjarlægja alla málninguna, þvo flötinn og byrja upp á nýtt.
|