| Skipa- og iðnaðardeild
Undirbúningur tryggir árangur
Áður en hafist er handa við málningarvinnu er mikilvægt að skipuleggja sig vel í tíma. Um margar leiðir er að velja, bæði varðandi efni og aðferðir. Þessi síða tekur á nokkrum atriðum varðandi undirbúning fyrir málningarvinnu.
Undirbúningur yfirborðs
Þvottur.
Háþrýstiþvottur fjarlægir sölt og þess háttar óhreinindi, aftur á móti þarf ákveðin hreinsiefni ef fjarlægja á olíu og fitu.
Hreinsun og hreinleiki.
Ein mesta undirbúningsvinnan fyrir málun er þegar yfirborð er undirbúið með að hreinsa af því ryð, gamla málningarfilmu, eldhúð o.s.frv. Hreinsunin er oftast framkvæmd með handverkfærum, vatns- eða sandblæstri.
Annað varðandi undirbúning
Yfirborðsmeðferð stáls.
- Nokkur íhugunarefni fyrir endurmálun.
Vatnsblástur - vinnulýsingar
- Áður máluð stályfirborð hreinsuð með vatnsstraumi. Hvaða aðferðir og efni skal nota.
Verkfæri við málun
Umfjöllun um þau helstu verkfæri sem notuð eru til að koma málningunni á flötinn.
|