Leita
Forsíða > Skipa- og iðnaðardeild > Undirbúningur > Hreinsun
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Eftirlit - FROSIO
Undirbúningur
Þvottur
Hreinsun
Verkfæri
Málningarkerfi
Ýmsar greinar
Húsadeild
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir
Skipa- og iðnaðardeild

Tengt efni

Botnmálning.
Daggarmarks- útreikningar.

Hreinsun

Algengustu aðferðirnar eru sandblástur, vatnsblástur og handverkfæri . Allar hafa þær sína kosti og galla.

Sandblástur

Aðferðin byggist á því að blása rifefnum, t.d. sandi, á flötinn til að fjarlægja ryð og gamla málningu. Einn kostur sandblásturs er að hægt er að ná fram hrjúfleika. Gerð blástursefna skiptir miklu máli varðandi hvaða mynstur eða hrjúfleiki næst. Til eru myndastaðlar varðandi slíkan blástur. Sá algengasti er ISO 8501 og sýnir hann mismunandi hreinleika eftir blástur frá ákveðnu upphafsástandi. Mjög algengt er að í verklýsingum er vísað til ISO 8501.

ISO 8501 - Blástur

Þetta er myndastaðall sem gengur út frá 4 mismunandi upphafsyfirborðum, þ.e. A, B, C og D.

A - Stályfirborð að mestu leyti þakið fastri eldhúð og lítil eða engin tæring byrjuð.

B - Stályfirborð er byrjað að tærast og eldhúð byrjuð að flagna af.

C - Stályfirborð þar sem eldhúð hefur tærst í burt eða hægt að skafa í burt. Örlítil pittamyndun sjáanleg án stækkunar.

D - Stályfirborð þar sem eldhúð hefur tærst í burt og almennt pittamyndun sjáanleg án stækkunar.

Yfirborð D - Á þessari mynd sést að eldhúð hefur tærist í burt og talsverð pittamyndun hefur átt sér stað.

Nokkrir hreinleikar eru skilgreindir í 8501.

Sa 3 - Blástur að sjáanlega hreinu stáli.

Séð án stækkunar, skal yfirborðið vera án sjáanlegrar olíu, fitu og óhreininda, ásamt því að vera laust við eldhúð, ryð, málningafilmu og aðra aðskotahluti (sjá athugasemd 1). Flöturinn skal hafa jafnan og áþekkan málmlit. Sjá myndir A Sa 3, B Sa 3, C Sa 3 og D Sa 3.

Sa 2 ½ - Mjög vandlegur blástur.

Séð án stækkunar, skal yfirborðið vera án sjáanlegrar olíu, fitu og óhreininda, ásamt því að vera laust við eldhúð, ryð, málningafilmu og aðra aðskotahluti (sjá athugasemd 1). Sérhver snefill af mengun sem verður eftir skal aðeins sjást í smávægilegum blettum í formi örlítilla díla eða ráka. Sjá myndir A Sa 2 ½, B Sa 2 ½, C Sa 2 ½ og D Sa 2 ½.

Sa 2 - Vandlegur blástur.

Séð án stækkunar, skal yfirborðið vera án sjáanlegrar olíu, fitu og óhreininda, ásamt því að vera að mestu laust við eldhúð, ryð, málningafilmu og aðra aðskotahluti (sjá athugasemd 1). Sérhverjar leifar af mengun skulu hafa góða viðloðun (sjá athugasemd 2). Sjá myndir A Sa 2, B Sa 2, C Sa 2 og D Sa 2.

Sa 1 - Léttur blástur.

Séð án stækkunar, skal yfirborðið vera án sjáanlegrar olíu, fitu og óhreininda, ásamt eldhúð, ryð, málningafilmu og aðra aðskotahluti með lélega viðloðun (sjá athugasemd 2). Sjá myndir B Sa 1, C Sa 1 og D Sa 1.

Athugasemdir

  1. Hugtakið "aðskotahlutir" getur átt við vatnsleysanleg sölt og suðugjall. Slíka mengun er ekki alltaf hægt að fjarlægja með þurrblæstri eða handverkfærum. Þvottur með vatni, líkt og blautblástur eða háþrýstiþvottur, getur verið nauðsynlegur í sumum tilvikum.
  2. Eldhúð, ryð og málningarfilma eru talin hafa lélega viðloðun ef hægt er að lifta þeim í burt með bitlausum hnífi.

Algeng hreinleikakrafa er Sa 2 ½, sem er krafa um mjög vandlegan blástur.

ISO 8501 segir aðeins til um hreinleika en ekki hrjúfleika, til að meta hrjúfleika er hægt að nota t.d. ISO Comparator (sjá í ISO 8503) eða Rugotest.

Stálflötur sem hefur verðið hreinsaður í Sa 2 ½, sem er algeng krafa um hreinleika. ISO 8501 er myndastaðall, sem nauðsynlegur er til að meta hreinleika stáls.

ISO Comparator (ISO 8503) og Rugotest (til hægri) eru verkfæri sem algengt er að nota til að meta hrjúfleika stáls.

Sandblástur fjarlægir lítið sölt og olíur og í sumum tilvikum getur hann ýtt óæskilegum efnum lengra inn í flötinn. Mikil rykmyndun getur komið við blástur. Rykkornin geta verið mjög smá og hangið lengi í lofti eftir blástur. Vegna smæðar sinnar geta þau verið hættuleg lungu og heilsu manna.

Vatnsblástur

Vatnsblástur hefur aukist mikið undanfarin ár og mun væntalega aukast enn frekar komandi ár. Vatnsblástur fjarlægir sölt, sem geta verið mjög skaðleg málningarkerfum. Vatnsmagn skiptir þar meira máli en þrýstingur við að fjarlægja slík vatnsþynnanleg sölt. Meðal annara kosta er…

  • Hægt að fjarlægja gamla málningu og ryð.
  • Auðvelt að fjarlægja blástursefni (vatn).
  • Fljótleg aðferð.
  • Lítil rykmyndun.
  • Vatnsblástur er sérlega hentugur fyrir endurmálun.

Aftur á móti eru nokkrar takmarkanir á vatnsblæstri.

  • Vatnsblástur myndar ekki hrjúfleika.
  • Vatnsblástur fjarlægir ekki eða illa eldhúð.
  • Flöturinn getur einnig byrjað fljótt aftur að ryðga. Ákveðin tæring er þó leyfð.
  • Nota verður sérstakar gerðir af málningu á vatnsblástna fleti.
  • Hreinleiki flatarins.

Hreinleiki flatarins er skilgreint í 4 stig, þ.e. WJ-1, WJ-2, WJ-3 og WJ-4.

WJ-1

Flöturinn skal vera hreinn, þ.e.a.s. algjörlega laus við ryð, gamla málningu, eldhúð og aðskotaefni. Flöturinn skal hafa matta málm áferð.

WJ-2

Flöturinn skal hafa matta málm áferð. Meira en 95 % af fletinum skal vera algjörlega hreinn. Önnur svæði (innan við 5 %) skal vera dreifðir flekki af ryði, málningu og aðskotaefnum.

WJ-3

Flöturinn skal hafa matta málm áferð. Meira en 2/3 af fletinum skal vera algjörlega hreinn (fyrir utan eldhúð). Önnur svæði (innan 1/3 af fletinum) skal vera dreifðir flekki af ryði, málningu og aðskotaefnum.

WJ-4

Flöturinn skal ekki hafa laust ryð, lausa eldhúð og lausa málningu.

Hér að neðan eru myndir sem sína dæmi um hreinleika og skyndiryð.

Dæmi um hreinleika WJ-3 og WJ-2.

Handverkfæri

Til eru margar gerðir af handverkfærum, mætti þar nefna vírbursta, sköfur, hnífa, hamra og meitill. Einnig mætti nefna ýmis konar vélknúin verkfæri, eins og diska, skífur, nálabyssur og höggbora. Lýsingu á yfirborðsmeðhöndlunaraðferðum með handverkfærum er hægt að finna í ISO 8504-3.

Svona verkfæri henta vel til viðgerða á smáum svæðum og þar sem erfitt getur verið að koma við blæstri. Þessi aðferð er þó í flestum tilvikum mun hægari en blástur. Ekki er hægt að ná eins góðum árangri með slíkum verkfærum en með blæstri. Í ISO 8501 er myndastaðall fyrir hreinsun með handverkfærum. Í stað Sa fyrir sandblástur er hreinleikinn gefinn sem St.

ISO 8501 - Handverkfæri

St 3 - Mjög vandleg hreinsun með handverkfærum.

Sama og fyrir St 2, en yfirborðið er unnið meira, þannig að málmgljái kemur frá málmyfirborðinu. Sjá myndir B St 3, C St 3 og D St 3.

St 2 - vandleg hreinsun með handverkfærum.

Séð án stækkunar, skal yfirborðið vera án sjáanlegrar olíu, fitu og óhreininda, ásamt eldhúð, ryð, málningafilmu og aðra aðskotahluti með lélega viðloðun (sjá athugasemd 2). Sjá myndir B Sa 1, C Sa 1 og D Sa 1.

Hreinleikinn St 1 er ekki til, þar sem slíkt yfirborð er óhæft til málunar.

Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255