|
Skipa- og iðnaðardeild
Málningarvörn
Við val á málningu er valin sú aðferð sem verja á málminn. Oftast er talað um að þrjár mismunandi gerðir af vörn, þ.e. þykktarvörn, hindrandi vörn og gölvunarvörn.
Þykktarvörn ("barriervörn")
Slík málning notar þykktina til að verja málminn frá tærandi efnum eins og súrefni, söltum og vatni, þ.e.a.s. engin raflausn og tæring á sér ekki stað. Rétt filmuþykkt er afar mikilvæg, þegar slík vörn er valin. Þessi vörn hentar afar vel ef málningarfilman er stöðugt í kafi, t.d. til verndar skipsbotna og innan í sjótanka. Hefðbundin epoxý, eins og Hempadur 4514 byggja á slíkri ryðvörn.

Hindrandi vörn ("inhibitive vörn")
Þessi efni nota líka þykktina til að verja málminn. Aftur á móti ef skemmd verður á filmunni, þá hvarfast efni (t.d. sink fosfat) við raka og myndar verndandi lag á málminn við skemmdina. Það hindrar m.a. ryðmyndun undir málningarfilmuna. Akrýlmálning, eins og Hempatex þykkmálning 4641 og alkýðgrunnur eins og Hempalin menja 1320 veita slíka vörn.

Gölvunarvörn ("Galvanic vörn")
Þessi efni innihalda málma, líkt og sink, sem fórna sér fyrir málminn sem á að verja. Þessir málmar eru anóður sem gefa frá sér rafeindir (e-) til málmsins. Mikilvægt er því að slík efni hafi beina snertingu við málminn sem þau eiga að verja. Einnig mynda sinksölt sem myndast efnasambönd sem fylla upp í skemmdir og tefja tæringu. Dæmi um gölvunarvirkni í málningu má finna í Hempel sinkgrunnur 1649, Galvosil 1570 (sinksilikat) og Hempadur epoxy sink 1736.

|