|
Skipa- og iðnaðardeild
Málningarefni á málma
Málningarefni eru oft flokkuð eftir því hvaða bindiefni þau hafa. Sá efnisþáttur ræður oftast um aðra eiginleika málningar, líkt og vatnsþol, veðrunarþol, litheldni, gljáheldni o.s.frv. Hér er fjallað um ýmsa kosti og galla nokkurra málningartegunda.
Tjara og bitmenja
Þessi efni eru unnin úr kolatjöru eða hráolíu og eru yfirleitt hættuleg heilsu. Málning með þetta tjörubindiefni hafa m.a. eftirfarandi eiginleika...
- Góð vörn gegn vatni.
- Góða viðloðunar- og vætieiginleika, jafnvel á illa hreinsuð yfirborð.
- Þola illa sólskin.
- Eru aðeins til í svörtum eða dökkbrúnum lit.
Klórgúmmí
Þessi málningarefni innihalda yfirleitt klóraðar isoprenfjölliður, ásamt mýkiefni og eru helst notaðar sem millimálning. Meðal eiginleika eru...
- Góð vörn gegn vatni.
- Gott efnaþol.
- Geta gulnað vegna klórinnihalds.
- Eiga til að kalka í sólskini.
Akrýl
Akrýlmálningarefni eru gerð úr fjölliðum úr margs konar akrýleinliðum.
Þau hafa m.a. eftirfarandi einkenni...
- Gott veðrunarþol.
- Góða litheldni.
- Góða gljáheldni.
- Ekkert sérstaka vætieiginleika.
Alkýð
Hægt er að flokka alkýð í þrjá megin flokka, allt eftir lengd alkýð keðja, þ.e.a.s. stuttar, miðlungs og langar olíualkýð keðjur. Þær þorna með efnahvarfi við súrefni í andrúmslofti. Alkýðefni hafa m.a. eftirfarandi einkenni...
- Sæmilega lit og gljáheldni.
- Góða vætieiginleika.
- Þola ekki basískt umhverfi (Þess vegna er ekki hægt að nota alkýð á steinsteypu og galvanhúð).
- Þola ekki að liggja í vatni (má ekki nota undir sjólínu).
Epoxý
Epoxý bindiefni hvarfast við herða (t.d. polýamín eða polýamíð eða afleiður af þeim) og mynda þrívíddar kerfi efnatengja. Epoxý efni hafa eftirfarandi eiginleika...
- Mikið efnaþol.
- Frábært höggþol og álagsþol.
- Kalka í sólarljósi (þunnt lag á yfirborðinu brotnar niður) og missa gljáa.
- Tveggja þátta efni sem hafa ákveðinn notkunartíma eftir samlögun þáttanna.
Pólýúreþan
Pólýúreþan eru fjölliður sem eru myndaðar með efnahvarfi af isosýanati og pólýalkóhólum. Pólýúreþan er því í flestum tilvikum tveggja þátta efni. Efnið hefur eftirfarandi eiginleika...
- Frábæra lit- og gljáheldni.
- Frábært efnaþol og álagsþol.
- Viðkvæmt fyrir raka við framleiðslu og notkun.
- Tveggja þátta efni sem hafa ákveðinn notkunartíma eftir samlögun þáttanna.
Sink silikat
Sink (ethyl) siliköt eru tveggja þátta efni þar sem duft af sinkmálmi er blandað í vatns- eða leysiefna silikat blöndu við notkun. Þau harðna út frá koltvísýringi í andrúmslofti.
Sink siliköt hafa eftirfarandi eiginleika...
- Frábærir ryðvarnareiginleikar.
- Frábært verðrunar- og höggþol.
- Frábært þol gagnvart leysiefnum.
- Frábært efnaþol á bilinu pH 6-9.
- Þolir hita upp til 400°C.
Sílikon
Sílikon málningarefni eru gerð úr silika bindiefni sem eru vökvar við stofuhita en harðna við háan hita. Við 200°C verða efnahvörf og þétt og sterk filma myndast. Sílikon málningarefni eru...
- Hitaþolin að 550°C (ef ál fylliefni eru notuð).
- Frábær ryðvörn þrátt fyrir litla filmuþykkt.
|