Leita
Forsíða > Skipa- og iðnaðardeild > Málningarkerfi > ISO 12944
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Eftirlit
Undirbúningur
Málningarkerfi
Málningarefni á málma
Málningarvörn
ISO 12944
Málningarkerfi
Ýmsar greinar
Húsadeild
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Botnmálning.
Daggarmarks- útreikningar.
Skipa- og iðnaðardeild

ISO 12944

Þessi ISO-staðall hefur að gera með málningu sem tæringarvörn á stálmannvirkjum og hlutum sem eru húðaðir með ýmis konar léttmálmum.

  • Dæmi um málningarkerfi á stál og ISO 12944.

Ýmislegt um ISO 12944

  • Staðallinn skilgreinir 6 mismunandi tæringarflokka í andrúmslofti, sem eru C1, C2, C3, C4, C5-I og C5-M. C1 er flokkur fyrir mjög litla tæringu, en C5-M fyrir mjög mikla tæringu nálægt sjó. Svæðin eru m.a. flokkuð eftir því hversu mikill málmur tærist þar á einu ári.
  • Staðallinn skilgreinir þrjá flokka fyrir mannvirki í vatni og niðurgrafna í jörð.
  • Staðallinn inniheldur upplýsingar um undirbúning fyrir málningarvinnu. Mætti þar nefna ýmsar hreinsiaðferðir, hreinleiki og hrjúfleiki á stáli með vísun í ISO 8501, ISO 8502 og ISO 8503, notkun smíðagrunna og undirbúningur á flötum sem hafa verið málmhúðaðir.
  • Ýmsar ábendingar um hönnun mannvirkja til að einfalda eftirlit, viðhald og verndun mannvirkja.
  • Upplýsingar í töfluformi um val á efnum og filmuþykktum miðað við tæringarflokk og hversu lengi kerfið eigi að duga.

Íslenskt tæringarkort

Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins, ásamt öðrum aðilum, er með í gangi verkefni, sem hefur m.a. að leiðarljósi að búa til tæringarkort af Íslandi. Birtar hafa verið mjög merkilegar niðurstöður eftir eins árs prófun. Slíkt kort er hægt að nota til að ákvarða í hvaða tæringarflokki svæði eru, skv. ISO 12944.

ISO 12944 getur því verið mjög gagnlegt plagg fyrir þá sem útbúa málningarkerfi.

 

 

 

Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255