|
Skipa- og iðnaðardeild
FROSIO
Í gegnum tíðina hafa málningarframleiðendur sjálfir séð um þjálfun eftirlitsmanna sinna. Hempel rekur t.d. sinn eigin skóla, þar sem hin ýmsu námskeið eru haldin árið um kring. Með metnaðarfullu námskeiðahaldi hefur Hempel tryggt þekkingu eftirlitsmanna sinna og með því móti aukið gæði þeirra þjónustu sem þeir veita.
Í kringum 1986 komu Norðmenn á fót stofnun í sambandi við olíuiðnaðinn sem kallast FROSIO eða á þeirra tungu "Faglig Råd for Opplæring og Sertifisering av Inspektor Innen Overflatebehandlingsfagene".
|
Eitt af markmiðum FROSIO er að mennta og útskrifa eftirlitsmenn sem stunda eftirlit með yfirborðsmeðhöndlun og málningarvinnu. Allt er þetta gert samkvæmt norskum staðli NS 476. Í upphafi var FROSIO fyrst og fremst ætlað fyrir norska eftirlitsmenn innan olíugeirans. Nú er svo víða komið að FROSIO réttindi eru orðin virt víða um heim. Norski staðallinn NS 476 hefur meðal annars verið tekinn sem Evrópustaðall ENV 12837. Jafnframt hefur eftirspurn eftir eftirlitsmönnum með FROSIO réttindi aukist mikið og á mörgum stöðum í Evrópu, Mið Austurlöndum og Asíu er oft krafist, að eftirlitsmenn hafi FROSIO réttindi.
Slippfélagið hefur ætíð lagt áherslu á endurmenntun eftirlitsmanna sinna, þannig að reynsla þeirra nýtist sem allra best. FROSIO námskeið og réttindi er mikilvægur liður í því sambandi. Slippfélagið býður svo vel að hafa eftirlitsmenn með langa reynslu og svona réttindi.
Heimasíða FROSIO |
|