Leita
Forsíða > Húsadeild > Verklýsingar > Viður utanhúss > Málningarkerfi á við
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Litir
Verklýsingar
Steinn utanhúss
Viður utanhúss
Gifsveggir
Matvælafyrirtæki
Heimili
Annað
Spurt og svarað
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Litir og lita-samsetningar. Bæklingar og verklýsingar. Spurningar og svör.

Viður utanhúss

Málningarkerfi á við

Málningarkerfi á við getur samanstaðið af þremur hlutum, þ.e.a.s. grunnvörn, grunnmálningu og yfirmálningu. Fyrir málun viðs er vert að íhuga nokkra hluti sem geta haft veruleg áhrif á endingu og gæði málningarkerfisins. Mikilvægt er að gera hlutina réttí upphafi, því viðgerðir geta bæði verið tímafrekar og kostnaðarsamar.

Nokkur atriði til umhugsunar fyrir málun viðs.

Efnisyfirlit kafla

Aðrir kaflar um við.

Hlutverk málningarkerfa.

Málning og viðarvörn eru notuðar til að ná meðal annars fram lit, gljáa og útliti á við. Hægt er að setja á viðaryfirborð, glær, hálfþekjandi og þekjandi efni. Allt eftir smekki hvers og eins. Viðarvörn á einnig að vernda yfirborðið gegn t.d. óhreinindum, gráma, fúa, vatni og veðrun. Lykilatriði í vörn viðarvarnar er tvíþætt, þ.e.a.s. að hindra að sólarljós komist að viðaryfirborðinu og halda rakastigi viðarins lágu.

Málning 1 lætur timbrið blotna fyrr og þorna síður. Málning 2 lætur timbrið blotna síður og þorna fyrr.

Hér sést þróun rakastigs í við með tveimur ólíkum málningarefnum. Málning 1 hleypir vatni fyrr í gegnum sig, blotnar meir og þornar hægar heldur en málning 2. Mikilvægt hlutverk viðarvarna er að halda rakastigi undir 18-20 %, en það minnkar líkur á skemmdum af völdum raka. Þegar málningarkerfi verður fyrir vatnsálagi á það að halda vatni frá viðnum eins og hægt er en hleypa raka út eins fljótt og auðið er þegar skilyrði batna.

Munurinn á gagnvörn og grunnvörn.

Gagnvörn.

Gagnvörn er fúavörn þar sem viðurinn er mettaður með sæfiefnablöndu (eiturblöndu), sem er sett í timbrið í verksmiðju fyrir notkun timbursins.

Hægt er að fá mismunandi fúavarin við...

  • Flokkur M – Mjög vel varinn viður sem er notaður í sjó og burðarvirki í jörðu.
  • Eitur er oft kreósót og verður timbrið oft dökkt á lit.
  • Litur blæðir í gegnum málningu.
  • Flokkur A – Vel varinn viður til nota við hátt rakastig (inni og úti).
  • Eitur er vatnsþynnanleg sölt, t.d. bór, flúór, kopar og sink.
  • Er oft grænn á lit.
  • Ver að litlu leyti gegn veðrun.
  • Gæta þarf að því að viður sé orðin vel þurr fyrir málun.
  • Flokkur AB – Varin viður (helmingi minna eitur en í flokki A).
  • Flokkur B – Olíublönduð eitur.
  • Nær minnst 50 mm í rysju við endatré og 5 mm í rysju við þvertré.
  • Ver að einhverju leyti gegn vatni.
  • Lakasti flokkurinn varðandi fúavörn.

Almennt séð þá ver gagnvörn að litlu leyti gegn vatni og veðrun.

Grunnvörn.

Grunnvörn er þunn þornandi viðarvörn með sæfiefnablöndu sem borinn er á yfirborð timburs. Hlutverk þess er að meðal annars að metta yfirborðið. Sjá nánar um grunnvörn í umfjöllum um málningarefni.

Málningarkerfi á við utanhúss.

Hefðbundið málningkerfi inniheldur hreinsunaraðgerðir, ástand yfirborðs við málun og hvernig skuli staðið að sjálfri máluninni. Viðarflöturinn skal vera fastur viðkomu, hreinn, þurr, laus við gráma og sýkingu við málun. Hér er sérstaklega lögð áhersla á undirvinnu, þekjandi og hálfþekjandi málningarkerfi og málun palla.

Undirvinna

  1. Viðarkvoðu úr kvistum skal skrapa burt og þrífa með terpentínu.
  2. Fjarlægið sveppavöxt, mýglu og þess háttar. Mikilvægt er að gera þennan lið vandlega þar sem þessar örverur, þar sem þær geta skilið eftir sig gró. Notið klórsápu eins og Alg Mögeltvätt (vörunr. 6205). Notið sápuna þynnta 1 á móti 1 með vatni og látið vinna á fletinum í u.þ.b. 15 mínútur. Í mjög slæmum tilfellum má nota efnið óþynnt og láta það vinna á fletinum í 60 mínútur. Notið skrúbb til að nudda efninu vel inn í flötinn. Skolið síðan vel með vatni. Alg Mögeltvätt minnkar einnig gráma.
  3. Skafið og fjarlægið allan gráma og lausa málningu. Ef um er að ræða kalkaða gamla málningu skal þvo yfirborðið með málningarhreinsi og/eða nota sandpappír til að fjarlægja kalkað yfirborð. Ef viðaryfirborð er mjög slétt og gljáandi, þá skal matta yfirborðið með sandpappír. Fjarlægið allt ryk sem kemur við slípun.
  4. Nauðsynlegt er að skola í burt allar sápuleyfar með hreinu vatni.
  5. Þegar viðurinn er orðinn þurr, þ.e.a.s. með rakastig 18-20 %, er hægt að hefja málun.

Góð undirvinna er jafnan forsenda góðs árangurs.

Þekjandi málningarkerfi

  1. Metta skal alla sjúgandi fleti með grunnvörn, eins og Viðar grunnvörn (Vörunr. 2415). Mjög mikilvægt er að metta vel endatré og samskeyti. Endurtaka skal eftir þörfum.
  2. Grunnið með grunnmálningu (t.d. Viðar grunnmálningu (vörunr. 2420)) meðal annars til þess að auka filmuþykkt og fá gott yfirborð fyrir yfirmálninguna.
  3. Málið tvær til þrjár umferðir með yfirmálningu, líkt og Hjörva 30 (vörunr. 8330) og Viðar þekjandi (vörunr. 2430).

Svona málningarkerfi sem er uppbyggt af gæða grunnvörn, grunnmálningu og yfirmálningu gefur lengstu endingu. Sjá nánar í umfjöllum um grunnvörn, grunnmálningu og yfirmálningu.

Hálfþekjandi málningarkerfi

Ef óskað er eftir þannig áferð litur og/eða mynstur viðarins haldist er hægt að nota hálfþekjandi málningarkerfi. Fjallað er sérstaklega um liti og áferð í kaflanum ,,Litasíða - Viðarvörn".

  1. Metta skal alla sjúgandi fleti með grunnvörn, eins og Viðar grunnvörn (Vörunr. 2415). Mjög mikilvægt er að metta vel endatré og samskeyti. Endurtaka skal eftir þörfum.
  2. Grunnið mjög sjúgandi fleti með Viðar hálfþekjandi (vörunr. 2425) þynntu 10 % með terpentínu til að tryggja jafna áferð við lokamálun.
  3. Málið 2 umferðir með lituðum Viðar hálfþekjandi (vörunr. 2425). Málið fjöl fyrir fjöl til að fá jafna og fallega áferð.

Athugasemdir

  • Hafi fyrri umferð gefið þann lit sem óskað er, skal sú seinni vera glær því liturinn dökknar við hverja umferð. Ef örlítið vantar upp á litinn eftir fyrri umferð er hægt að þynna litinn með glærum Viðar hálfþekjandi. Þess ber þó að geta að liturinn felur í sér vörn gegn sólarljósi.
  • Ef of lítill litur er notaður getur grámi byrjað undir filmunni og flögnun átt sér stað. Meiri filmuþykkt og litur gefur lengri endingu.
  • Sé um að ræða mjög illa farinn við er ráðlegt að skipta yfir í Viðar þekjandi eða grunnmála með Viðari grunnmálningu og mála síðan með Hjörva 30.
  • Litur dökknar við hverja umferð sem máluð er. Ef menn vilja lýsa upp lit á gömlu yfirborði getur borgað sig að mála eina umferð með gulum Viðari hálfþekjandi og mála síðan yfir með þeim lit sem óskað er. Sjá nánar í umfjöllun í ,,Litasíðu - viðarvörn".

Málningarkerfi á palla

Viðar pallaolía (2413) er ætluð til að koma í veg fyrir vatnsupptöku. Olían inniheldur efni til varnar sveppa- og gróðurmyndun. Viðar pallaolía frískar útlit viðarins, kemur í veg fyrir ofþornun og sprungumyndun. Æskilegast er að bera á pallinn sem fyrst. Lituð pallaolía ver einnig við gegn sólarljósi.

Á sjúgandi fleti skal bera Viðar pallaolíu (2413) blautt í blautt allt þar til viðurinn er fullmettaður. Í flestum tilfellum duga ein til þrjár umferðir. Fleti sem mikið mæðir á skal meðhöndla á hverju ári. Mattið heflaðan við með sandpappír nr. 80, til að opna viðinn fyrir olíunni.

Athugasemdir

  • Pallaolía er ætlað að metta viðinn en ekki mynda filmu. Þurrkið af afgangs efni.
  • Sólarvörn felst í litarefnum sem notuð eru til að lita pallaolíuna. Sterkari litur gefur sterkari sólarvörn.
  • Við málun þarf að hræra reglulega, þar sem pallaolía er þunnfljótandi og litur getur fallið niður á botn. Mikilvægt er að litur sé jafndreifður um dósina við málun.
  • Viðar pallaolía inniheldur þornandi olíur og því er hætta á sjálfsíkveikju. Úrgangi, notuðum tuskum o.þ.h. skal farga tryggilega!

 

<< Viður utanhúss - Málningarefni
Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255