Leita
Forsíða > Húsadeild > Verklýsingar > Viður utanhúss > Málningarefni
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Litir
Verklýsingar
Steinn utanhúss
Viður utanhúss
Gifsveggir
Matvælafyrirtæki
Heimili
Annað
Spurt og svarað
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Litir og lita-samsetningar. Bæklingar og verklýsingar. Spurningar og svör.

Viður utanhúss

Málningarefni

Málningarefni á timbur utanhúss þurfa ekki bara að glíma við margbreytilega veðráttu, líkt og sólskin, regn, frost og hita. Þau geta meðal annars þurft að glíma við miklar hreyfingar, fúa og blæðingu efna frá viðnum. Jafnframt þurfa þau að geta veitt timrinu vörn gegn sólarljósi og vatni.

Í þessum hluta verður fjallað sérstaklega um þau efni sem eru notuð á tréveggi og þess háttar.

Efnisyfirlit kafla

Aðrir kaflar um við.

Eiginleikar viðarvarna.

Á timbur er lykilatriði að málningarfilma hafi eftirfarandi eiginleika.

  • Hafa góða viðloðunareiginleika.
  • Vera opin gagnvart vatnsgufu.
  • Vera lokuð gagnvart vatni.
  • Hafi nægilega mýkt til að fylgja hreyfingu timbursins.
  • Hafa viðnám gegn fúa og þess háttar.

Málningarefni á timbur er oft sett í þrjá mismunandi flokka, sem hafa bæði líka og ólíka eiginleika. Þessir flokkar eru grunnvörn, grunnmálning og yfirmálning. Algengt er að málningarkerfi samanstendur af efnum frá öllum þessum flokkum.

Grunnvörn.

Grunnvörn hefur bindiefni með mjög litla fjölliðubyggingu og lítið rúmmál. Sökum smæðar sinnar nær bindiefnið því að smjúga vel inn í yfirborð viðarins. Grunnvörn inniheldur jafnframt oft sæfiefni gegn sveppurm, fúa, þörungum og/eða gróðurmyndun.

Grunnvörn hefur eftirfarandi kosti...

  • Smýgur vel inn í sjúgandi holur í yfirborði.
  • Hefur góða viðloðun.
  • Veitir timbri vatnsvörn, sér í lagi endatré og þar sem timbur er mjög sjúgandi.

Grunnvörn hefur sýnt sig vera mjög mikilvæg ef timbur er sjúgandi, meðal annars sökum þess að hún veitir vatnsvörn. Með að metta enda með grunnvörn minnkar til mikilla muna vatnsupptaka timburs. Það hefur í för með sér minni úttútnun timburs vegna vatns í námd við enda. Þannig minnka líkur á að málning flagni af þeim svæðum og að fúavöxtur hefist.

Á þessari mynd sést hvernig grunnvörn (lituð rauðleit) nær að metta yfirborðið og styrkja það.

Meðal hlutverka grunnvarnar er að...

  • Metta yfirborðið.
  • Styrkja yfirborðið.
  • Gera gróft og illa farið yfirborð betur hæft til málunar.
  • Hindra upptöku vatns og koma í veg fyrir skilyrði til fúamyndunar.

Athuga ber að grunnvörn er aðeins yfirborðsefni og hefur því ekki sama hlutverk og gagnvörn. Ef mikil hætta er á fúamyndun skal nota gagnvarið timbur.

Viðar grunnvörn (vörunr. 2415).

Viðar grunnvörn er öflug grunnviðarvörn sem inniheldur sérhannaðar þornandi olíur sem ná að smjúga langt inn í viðinn og verja hann gegn upptöku á raka. Viðar grunnvörn inniheldur einnig efni til varnar sveppa- og gróðurmyndun. Eftir mettun viðarins með grunnvörninni er því komið í veg fyrir rakaupptöku viðarins og skilyrði til fúamyndunar. Viðar grunnvörn er ætluð til notkunar utanhúss til mettunar á nýjum og ómáluðum viði fyrir málun með grunnmálningu, hálfþekjandi eða þekjandi viðarvörn.

Grunnmálning.

Grunnmálning er svokölluð millimálning sem á að auka filmuþykkt og gefa betra undirlag fyrir yfirmálningu. Grunnmálning þarf að hafa góða viðloðun og vera opin gagnvart vatnsgufu. Jafnframt eiga þær að koma í veg fyrir blæðingu frá timbrinu og halda aftur að viðarkvoðu frá kvistum.

Grunnmálning hefur eftirfarandi eiginleika...

  • Er þurrefnarík og opin.
  • Fyllir upp í yfirborðið.
  • Myndar slétt og sterkt yfirborð.
  • Eykur filmuþykkt málningarkerfisins.

Á þessari mynd sést þegar grunnmálning er sett yfir grunnvörn. Málningin fyllir vel yfirborðið, myndar slétt yfirborð og þykktin eykst.

Viðar grunnmálning (vörunr. 2420).

Viðar grunnmálning er alkýð/línolíu grunnmálning á við sem á að yfirmála með plastþeytu- eða alkýð/olíumálningu. Málningin smýgur vel inn í viðinn, bindur hann vel og tryggir góða viðloðun. Málningin er mjög vatnsfráhrindandi en jafnframt opin gagnvart vatnsgufu. Þannig hleypir hún raka úr viðnum og kemur í veg fyrir uppsöfnun raka. Viðar grunnmálning kemur í veg fyrir blæðingu efna úr timbrinu og tefur fyrir viðarkvoðu úr kvistum. Málningin inniheldur efni gegn gróður- og sveppamyndun. Viðar grunnmálning er ætluð til grunnunar á gluggum, viðarklæðningum, þakköntum o.þ.h. utanhúss. Áður en kíttað er í gluggaföls skal grunna með Viðari grunnmálningu. Einnig er hægt að nota efnið til að lýsa upp hálfþekjandi málningarkerfi.

Yfirmálning.

Yfirmálningin ákvarðar lit, gljáa og áferð. Hún er jafnframt fyrsta vörn málningarkerfisins gegn náttúruöflunum og þarf að duga jafnt í sólskini, regni, frosti og hita. Jafnframt þarf hún að hreinsa sig vel svo að óhreinindi og gróður nái ekki að festast við málningarfilmuna.

Meðal hlutverka yfirmálningar er að...

  • Fegra.
  • Vera opin gagnvart vatnsgufu.
  • Hrinda vatni frá yfirborði.
  • Hrinda að óhreinindi nái að festast við yfirborð.

Yfirmálning gefur áferð, gljáa og þúsundir litaafbrigða. <Breyta lit á mynd>

Yfirleitt stendur valið um tvær mismunandi gerðir af yfirmálningu, þ.e.a.s. vatnsþynnanlega akrýlmálningu og terpentínuþynnanlega alkýðolíumálningu. Þær hafa mismunandi eiginleika sem þarf að vega og meta hverju sinni.

Alkýðolíumálning.

Alkýðolíuefni hafa verið mikið notuð í viðarvarnir í nokkra áratugi. Slík efni hafa yfirleitt góða smýgni- og vætieiginleika sem gefur viðloðun. Jafnframt þorna og harðna þessi olíuefni með efnahvarfi við súrefni í andrúmslofti. Það ferli heldur áfram og með tímanum missa þessi efni mýkt sína smá saman. Jafnframt hafa alkýðolíuefni sæmilegt þol gagnvart sólarljósi, en eiga það til að kalka og tapa lit og gljáa með aldri.

Vatnsþynnanleg akrýlmálning.

Notkun vatnsþynnanlegrar akrýlmálningu á timbur hefur aukist á undanförnum árum, bæði vegna umhverfismála og góðrar reynslu á slíkri málningu. Akrýlmálningin hefur mikið þol gagnvart útfjólubláum geislum (UV-geislar) sólarinnar og mikið veðrunarþol. Þessi gerð málningarefna hafa litla tilhneigingu til kölkunar en mikla lit- og gljáheldni. Þetta á sér í lagi um málningarefni með hreinu akrýlbindiefni. Akrýlefni eru jafnframt "thermoplastísk", þ.e.a.s. þau mýkast í hita en það hjálpar til við að þola hreyfingu timburs.

Mismunandi eiginleikar.

Meðal mismunandi eiginleikar vatnsþynnanlegra akrýlmálningar og alkýðolíumálningar á timbur...

  • Akrýlmálning heldur betur mýkt sinni með aldri.
  • Akrýlmálning er mýkri og fylgir betur hreyfingum timburs.
  • Akrýlmálning heldur betur lit og gljáa.
  • Akrýlmálningin er fljótari að þorna.
  • Akrýlmálningin mýkist í hita.
  • Akrýlmálningin er umhverfisvænari.
  • Alkýðolíumálning vætir flötinn betur.
  • Alkýðolíumálning nær betri viðloðun við illa farin yfirborð.
  • Alkýðolíumálning gefur minna af pensilförum.

Alkýðolíumálning - Viðar þekjandi (vörunr. 2430).

Viðar þekjandi er þekjandi viðarmálning byggð upp af alkýðbindiefnum. Málningin er létt í vinnslu, flýtur vel og myndar þekjandi filmu án þess að viðarmynstrið tapist. Málningin hefur mjög góða smýgni- og vætieiginleika á viðarfleti, ásamt því að mynda vatnsfráhrindandi og veðurþolna filmu og hentar því íslenskum aðstæðum sérstaklega vel. Viðar þekjandi inniheldur efni sem verja viðinn gegn niðurbrotsáhrifum sólarinnar og efni til varnar gegn sveppa- og gróðurmyndun. Viðar þekjandi er ætluð til málunar á nýjan við utanhúss, en er einnig hentug til endurmálunar á fleti áður málaða með hálfþekjandi eða þekjandi viðarvörn.

Meðal sérstakra eiginleika Viðars þekjandi...

  • Er hlaupkennt og auðvelt í vinnslu (slettist ekki).
  • Flýtur vel út og myndar afar slétta filmu.
  • Viðarmynstrið tapast ekki.
  • Heldur mýkt sinni með aldri.

Vatnsþynnanleg akrýlmálning - Hjörvi 30 (vörunr. 8330).

Hjörvi 30 er vatnsþynnanleg akrýlmálning, með hreinu akrýlbindiefni, ætluð sem lokaumferð á við og léttmálma. Málningin er auðveld í notkun, fljótþornandi og heldur lit og gljáa sérlega vel. Málningin hefur góða viðloðunareiginleika og hentar vel til endurmálunar á fleti áður málaða með alkýðolíumálningu eða hefðbundinni plastmálningu. Hjörvi 30 inniheldur efni til varnar gegn gróðurmyndun.

 

<< Álagsþættir og ending
Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255