Leita
Forsíða > Húsadeild > Verklýsingar > Steinn utanhúss > Ýmislegt um steinsteypu
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Litir
Verklýsingar
Steinn utanhúss
Viður utanhúss
Gifsveggir
Matvælafyrirtæki
Heimili
Annað
Spurt og svarað
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Litir og lita-samsetningar. Bæklingar og verklýsingar. Spurningar og svör.

Steinn utanhúss

Ýmislegt um steinsteypu

Steinsteypa hefur nokkra sérstöðu um hvaða álag málningarefni þurfa að þola miðað við önnur yfirborð. Þar mætti meðal annars nefna hátt pH gildi og karbóneringu. Nokkur atriði til umhugsunar fyrir málun steinsteypu.

Efnisyfirlit kafla

Aðrir kaflar um steinsteypu.

 

Aldur steinsteypu - málun.

Vegna þess hversu miklar breytingar eiga sér stað í steinsteypu fyrsta mánuðinn skal ekki mála steinsteypu fyrr en eftir steypan hefur náð því að þorna og harðna.

Jafnframt þarf að hafa í huga að steinsteypa verður fyrir áhrifum frá koltvísýringi í andrúmsloftinu og verður því alltaf súrari og súrari, sjá nánar í kafla um karbóneringu.

Karbónering

Karbónering nefnist það þegar steypa hvarfast við koltvísýring úr andrúmslofti og verður súrari. Slíkt er óhjákvæmilegt nema steypan sé varin, t.d. með málningu (Brynja, Vitretex eða Hjörvi). Þumalputtaregla segir, að óvarin steypa karbónerast um 1 mm á ári. Sýrustig inni í steypu skal vera hátt, þar sem járn myndar verndandi oxíðfilmu við slíkar aðstæður (ekki ósvipað og ryðfrítt stál). Þannig ver steypan járnabindingar gegn tæringu, en ef sýrustig fer undir pH = 9, þá byrjar járnabindingar að skemmast hratt með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Raki og salt í andrúmslofti eykur til muna tæringarálag á járnabindingar.

Hægt og sígandi lækkar koltvísýringur (CO2) andrúmsloft sýrustig (pH) steinsteypu.

Sementshúð

Sementshúð er þurrefnaríkt og duftkennd sementslag sem myndast yst á steinsteypu eftir lagningu hennar í mót. Nauðsynlegt er að fjarlægja alla sementshúð, þar sem lagið hefur lítinn innri styrk og flagnar að lokum af sjálfri steypunni. Hægt er að fjarlægja sementshúð með rifefnablæstri, vatnsháþrýstiblæstri eða með saltsýruþvotti. Lagið flagnar af eftir nokkra ára veðrun.

Sementshúð liggur yst á steinsteypu, hefur lítinn innri styrk og því þarf að fjarlægja hana fyrir málun.

Saltútfelling

Á veðraða steypu kemur oft hvít duftkennd saltútfelling. Þessi útfelling stafar af söltum sem koma úr steypunni. Söltin skaða m.a. viðloðun málningar og skal fjarlægja, t.d. með vatnsblæstri (lágmark 150 bör).

Rakastig í steinsteypu

Raki í steypu skal vera minni en 4 % þ/þ við málun. Til að áætla rakastig steypunnar er hægt að nota mælitæki sem mæla t.d. leiðni í steypunni. Einfalt próf til að athuga hvort rakaútstreymi sé orðið nægilega lítið er svokallað plastdúkapróf.

Sýrustig í steypu

Sýrustig steypu er basískt og þarf málningin því að þola slíkar aðstæður mjög vel. Inni í steypu er sýrustigið yfirleitt mjög hátt eða um pH = 13 (sjá pH). Sýrustigið getur lækkað við öldrun og of lágt sýrustig getur valið því að járnabinding getur farið að skemmast, (sjá karbóneringu). Yfirborð steinsteypu skal vera á bilinu pH 6.8 - 8.0 við málun. Ef um er að ræða önnur pH-gildi er hægt að skola steypuna með hreinu vatni. Ný steypa hefur hátt pH gildi á yfirborðinu og þarf tíma fyrir málun, sjá aldur steypu.

Mótaolía

Mótaolía er oft notuð til að smyrja steypumót. Slík fita getur orðið eftir á fletinum þegar mótin eru slegin frá. Eins og allar aðrar fitur og olíur er nauðsynlegt að fjarlægja hana fyrir málun, t.d. með olíuhreinsi.

 

<< Almennt um steinsteypu
Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255