Leita
Forsíða > Húsadeild > Verklýsingar > Steinn utanhúss > Málningarefni á stein utanhúss
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Litir
Verklýsingar
Steinn utanhúss
Viður utanhúss
Gifsveggir
Matvælafyrirtæki
Heimili
Annað
Spurt og svarað
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Litir og lita-samsetningar. Bæklingar og verklýsingar. Spurningar og svör.

Steinn utanhúss

Málningarefni á stein utanhúss

Málningarefni á stein utanhúss þurfa að glíma við margbreytilega veðráttu. Þau þurfa meðal annars að þola sólskin, regn, frost og mengun. Jafnframt þurfa þau að geta veitt steininum nægilega vörn gegn öllum þessum umhverfisþáttum. Á steinsteypu er lykilatriði að málningarfilma hafi eftirfarandi eiginleika.

  • Hafa góða viðloðunareiginleika.
  • Vera opin gagnvart vatnsgufu.
  • Vera lokuð gagnvart vatni.

Í þessum hluta verður fjallað sérstaklega um þau efni sem eru notuð á steinveggi og þess háttar.

Efnisyfirlit kafla

Aðrir kaflar um steinsteypu.

 

Rakaflæði og vatnsídreypni

Þegar steinn andar gefur hann frá sér vatn í gufuformi. Til að slík gufa safnist ekki á bak við málningarfilmu og rífi hana upp þarf öndun og viðloðun að vera nægjanleg. Aftur á móti má málningarfilma ekki vera of opin þannig að hún taki of mikið við vatni, t.d. rigningarvatni og nái ekki að verja steininn. Málningarframleiðendur reyna að þróa málningarefni sín með báða þessa eiginleika, þ.e.a.s. að þau séu opin gagnvart vatnsgufu/raka en lokuð gagnvart vatni í vökvaformi.

Málning á að hleypa raka í gegnum sig. Málning á að vera lokuð gegn vatni.

Í flestum tilvikum er reynt að uppfylla svokallaða Künzel tilgátu (sjá H. Künzel, Beurteilung des Regenschutzes von Aussenbeschichtungen, Report 18, 1978).

Tilgáta Künzel
Künzel setti fram þá tilgátu að góð málning á stein skuli uppfylla þrjú skilyrði.

  1. W ≤ 0.5 kg/(m2h0.5).
  2. Sd ≤ 2.0 m.
  3. W•Sd ≤ 0.1 kg/(mh0.5).

Sd er viðnám gegn flæði vatnsgufu gefið sem þykkt loftlags í metrum.

  • Hátt Sd þýðir að málning sé lokuð.
  • W er magn vatns sem filman sýgur í sig.
  • Hátt W þýðir að málning sýgur fljótandi vatn vel inn í sig.

Málning er of lokuð og þétt gagnvart raka. Málningin er of opin. Málningin er tiltölulega lokuð gagnvart vatni og raka. Hún hefur samt sem áður næginlega ,,öndun Málningin er bæði opin gagnvart vatni og vatnsgufu. Svona efni hentar síður ef mikið vatn liggur á fletinum. Málning með þessa eiginleika er frábæra ,,öndun Málningin hentar ekki til nota á stein. Málningin hefur frábæra ,,öndun

Á þessu línuriti sjást Künzel skilyrði. Sd skal vera undir 2 m en W skal jafnframt vera undir 0,5 kg/(m2h0.5).

Staðallinn DIN 18 558 segir að W•Sd megi vera að hámarki 0.2 kg/(mh0.5).

Sílanefni

Sílanefni eru borin á steinsteypu til að gera hana vatnsfælna og koma í veg fyrir vatnsskemmdir. Sílanefni halda vatni frá smásprungum (netsprungum) allt að 0,3 mm að vídd. Stærri sprungur verður að gera við með öðrum hætti áður en hafist er handa. Sílanefni koma ekki í veg fyrir áhrif koltvísýrings á steypu.

Efnin hvarfast m.a. við kísil í stein og ná þannig viðloðun við flötinn. Gler inniheldur líka kísil og því geta sílanefni fest við og mattað slíka fleti. Sílanefni mynda fá tengi við t.d. plastmálningu og festast því illa við slík efni. Tilgangslaust er að sílanbera yfir plastmálningu, eins og Vitretex.

Til að hámarka magn sílanefna á og í steinyfirborði skal halda yfirborðinu eins röku og mögulegt er með sílaninu. Þannig skapast aðstæður, að þynnir kemst lengra inn í yfirborðið og þar af leiðandi sílanefnin líka. Slík vinnubrögð skipta afar miklu máli varðandi endingu sílanefna á steinfleti.

Við bjóðum upp á tvö sílanefni, þ.e. Mónósílan 40 og Sílan 290.

Mónósílan 40

Mónósílan 40 er einföld gerð af sílan (þ.e.a.s. mónó), sem hefur mjög einfalda mólikúlbyggingu. Efnið á því að smjúga langt inni í stein. Sökum smæðar þess er það frekar rokgjarnt og skipta aðstæður miklu máli hversu mikið flöturinn nær að mettast af efninu. Ef veður er hlýtt, þurrt og vindasamt er hætt við að lítið að virku efni náist að festast við flötinn.

Teikning af mónósílan.

  • A = Alkóhól.
  • O = Súrefni.
  • Si = Kísill (silikón).
  • R = Fjölliða með vatnsfráhrindikraft.

Mónósílan - Helstu atriði.

  • Stærð um 5-10 nanómetrar (1 nanómeter er 1 milljónasti úr millimeter).
  • Smýgur afar vel inn í stein og gefur vatnsvörn inn í steininn.
  • Mónósílansameind festist á 3-4 tengjum við steininn.
  • Tengin myndast við efnahvarf við vatn.
  • Rokgjarnt og getur gufað upp ef þornun er of hröð. Festist því ekki á slétta fleti.

Sílan 290

Sílan 290 hefur flókna mólikúlbyggingu (alkýlalkoxýsíloxan ) og er mun stærra mólikúl en mónósílanið. Efnið hefur mun fleiri þætti innbyggða til að hrinda í burt vatni. Efnið er mun síður rokgjarnt en mónósílanið.

Teikning af síloxan.

  • A = Alkóhól.
  • O = Súrefni.
  • Si = Kísill (silikón).
  • R = Fjölliða með vatnsfráhrindikraft.

Síloxan - Helstu atriði.

  • Stærð um 10 – 20 x Mónósílan.
  • Leggst meira á yfirborðið og gefur vatnsvörn utan á steininum.
  • Tengin myndast við efnahvarf við vatn.
  • Ekki eins rokgjarnt og mónósílan og gufar síður upp ef þornun er hröð.
  • Festist á slétta fleti eins og gler.

Virkni sílanefna

Sílanefni hvarfast við vatn (H2O), festast við stein og gefa frá sér alkóhól (HOA).

Nokkur mikilvæg atriði varðandi sílanefni.

  • Vindálag skiptir máli hversu víðar sprungur eru sem sílanefni geta varið. Í stuttu máli sagt þá kemst vatn inn í þrengri sprungur við meiri vind.
  • Sílanefni koma ekki í veg fyrir áhrif koltvísýrings á steypu.
  • Verjið gler við úða af sílanefnum, þar sem þau geta fest sig við glerið.
  • Tilgangslaust er að sílanbera heila, áður málaða fleti.
  • Sílanefni henta sérlega vel til að halda vatni frá þröngum sprungum.
  • Úðið steinflötinn með sílanefni, látið efnið þorna í nokkrar mínútur og úðið aftur yfir með steinyfirborðið en rakt eftir fyrri umferð.

Terpentínuþynnanleg akrýlmálning

Akrýlefni sem eru leyst upp í terpentínu hafa verðið algeng málningarefni á stein utanhúss undanfarna áratugi. Efnin væta og smjúga vel inn í steininn sem gerðir þau þolnari á léleg og/eða duftsmitandi yfirborð en mörg önnur efni. Terpentínuþynnanleg akrýlmálning er mest notuð sem grunnur undir vatnsþynnanlega akrýlmálningu.

Almennir eiginleikar terpentínuþynnanlegrar akrýlmálningar.

  • Nokkuð lokuð gegn koltvísýringi (CO2) og söltum.
  • Smýgur vel inn í yfirborð og gefur því góða viðloðun.
  • Inniheldur mikið magn af fylliefnum og er opin gagnvart vatnsgufu.
  • Innri styrkur efnisins er tiltölulega lítill.
  • Er mun skítsælli en t.d. vatnsþynnanleg akrýlmálning.
  • Inniheldur terpentínu sem er lífræn leysiefni og því ber að fara varlega með efnið.

Brynja (vörunr. 8820) - Terpentínuþynnanleg akrýlmálning.

Brynja er mött terpentínuþynnanleg akrýlmálning ætluð á steinsteypu og múr utanhúss. Brynja er mjög opin og kemur því ekki í veg fyrir eðlilega rakaútgufun (,, öndun"). Málningin vætir mjög vel og hefur því mjög góða viðloðun við múr og steypu. Efnið hentar sérlega vel sem grunnur undir Vitretex, sem er vatnsþynnanleg akrýlmálning. Brynja hefur mikinn innri styrk miðað við sambærileg efni og mjög góða litheldni. Dæmi eru um meira en áratuga endingu efnisins. Hægt er að mála með Brynju við mun lægra hitastig en með vatnsþynnanlegum málningum.

Yfirborð Brynju stækkað x 5000.

Vatnsþynnanleg akrýlmálning

Vatnsþynnanleg akrýlmálning er ef til vill algengasta málningtegundin á steinsteypu og múrhúð. Mismunandi eiginleikar þessar efna ráðast oft í bindiefni þeirra, t.d. er hægt að fá málningu með sérstaklega mjúku akrýlefni til að fylgja eftir sprunguhreyfingum og þess háttar og einnig er hægt að fá málningu með hreinni akrýlblöndu til að tryggja lit- og gljáheldni og jafnframt endingu.

Almennir eiginleikar vatnsþynnanlegrar akrýlmálningar.

  • Nokkuð lokuð gegn koltvísýringi (CO2) og söltum.
  • Vætir flötinn ekki eins vel og terpentínuþynnanleg akrýlmálning.
  • Hafa mjög gott veðrunarþol.
  • Hefur gott hlutfall á milli rakaflæði og vatnsídreypni.
  • Eru ekki eins skítsæl og terpentínuþynnanleg akrýlmálning.
  • Eru þægilegri í vinnslu en terpentínuþynnanleg akrýlmálning.
  • Inniheldur engin eða mjög lítið af lífrænum leysiefnum.

Vitretex (vörunr. 8210) - Vatnsþynnanleg akrýlmálning.

Vitretex er mött og vatnsþynnanleg akrýlmálning með gott alkalí-, vatns- og veðrunarþol og hentar því íslenskum aðstæðum sérlega vel. Bindiefnið í Vitretex er hreint akrýl sem gefur málningunni afburða mikla mótstöðu gegn gulnun og krítun. Einnig myndar hún sveigjanlega filmu sem minnkar líkur á sprungumyndun. Vitretex hefur góða ,, öndun", þ.e.a.s. hindrar ekki eðlilegt rakaútstreymi frá steinsteypu. Einnig hreinsar hún sig sérlega vel og safnar ekki í sig óhreinindum. Vitretex er létt í vinnslu og þekur vel.

Yfirborð Vitretex stækkað x 5000.

Vitretex þykkmálning (vörunr. 8215) - Vatnsþynnanleg akrýlmálning.

Vitretex þykkmálning er mött og vatnsþynnanleg akrýlmálning með gott alkalí-, vatns- og veðrunarþol. Vitretex þykkmálning inniheldur hreint og teygjanlegt akrýlbindiefni og hrindir vel frá sér óhreinindum. Hún myndar því teygjanlega og sveigjanlega filmu sem getur fylgt eftir fínum sprungum o.þ.h. Þykkmálningin er þétt gagnvart vatni en opin fyrir vatnsgufu og hindrar því ekki eðlilegt rakaútstreymi. Gufuþéttleiki efnisins (Sd,H2O) er minni en 2 m miðað við að notuð sé 1 kg/m2 af málningu. Efnið er afar lokað gagnvart koltvísýringi og söltum og hjálpar því
til við að varðveita ryðvarnareiginleika steinsteypu.

Vatnsþynnanleg sílikónmálning

Sílikónmálningarefni hafa þá eiginleika umfram önnur efni að vera mjög opin gagnvart rakaútsteymi, þ.e.a.s. með frábæra ,, öndun". Málningarfilman er oft mjög þurrefnarík og virkar duftsmitandi við viðkomu og er hálf sjálfslípandi við veðrun. Vegna þess að málningin er mjög opin þarf að grunna beran stein fyrir málun með sílikónmálningu, t.d. með terpentínuþynnanlegri akrýlmálningu.

Almennir eiginleikar vatnsþynnanlegrar sílikónmálningar.

  • Tiltölulega opin gegn koltvísýringi og söltum.
  • Hefur sæmilega viðloðun en ekki eins góða og terpentínuþynnanlega akrýlmálningin.
  • Hefur frábært veðrunarþol.
  • Hefur frábært hlutfall á milli rakaflæði og vatnsídreypni.
  • Er bara til í ljósum litum.
  • Inniheldur engin eða mjög lítið af lífrænum leysiefnum.

Steinsílan (vörunr. 8850) - Vatnsþynnanleg silikónmálning.

Steinsílan (8850) er mött vatnsþynnanleg sílikonplastþeytumálning ætluð á stein utanhúss. Sílikonbindiefnið myndar afar vatnsfráhrindandi filmu sem er samt mjög opin og hindrar því ekki eðlilega rakaútgufun úr steinsteypu. Málningin nær góðri viðloðun við flesta fleti og veðrunarþol filmunnar er mikið, ásamt því að hreinsa sig sérstaklega vel. Málningin hentar sérlega vel þegar endurmála á fleti sem eru með þykkri málningarfilmu, vegna þess hversu opin hún er fyrir rakaútgufun.

 

<< Ýmislegt um steinsteypu
Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255