Leita
Forsíða > Húsadeild > Spurt og svarað > Algengar spurningar og svör
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Litir
Verklýsingar
Spurt og svarað
Algengar spurningar og svör
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Litir og lita-samsetningar. Bæklingar og verklýsingar. Spurningar og svör.

Húsadeild

Algengar spurningar og svör

Hér er gagnagrunnur með svörum við algengum málningarspurningum.

 

Húsamálun og steinsteypa

Er nauðsynlegt að hreinsa fyrir málun?

Já, það er nauðsynlegt að fjarlægja vel öll óhreinindi. Hreinsun er afar mikilvægur þáttur í málningarvinnu því ryk, mold, sót, sölt og önnur óhreinindi geta haft skaðleg áhrif á viðloðun málningar við steininn. Meira þarf til að væta ryk o.þ.h., svo að efnisnotkun getur jafnframt aukist. Góð hreinsun getur lengt endingu málningarkerfisins um mörg ár.

Til baka

Af hverju má ekki mála olíumálningu á steinsteypu?

Alkýðolíumálning virðist við fyrstu sýn ná góðri viðloðun við gljúpa fleti eins og steinsteypu. Aftur á móti þola olíurnar í málningunni illa basískt umhverfi (hátt pH). Steinsteypa er í eðli sínu basísk og því byrjar slík málningin að sápast og flagna, sérstaklega ef um er að ræða nýjan stein og rakt umhverfi. Því skal varast að nota alkýðolíumálingu á steinsteypu og nota heldur málningu með t.d. akrýlbindiefni.

Til baka

Er nauðsynlegt að heilgrunna yfir gamla plastmálningu með terpentínuþynnanlegri málningu?

Nei, það er alls ekki nauðsynlegt. Í nær öllum tilvikum nær plastmálning mjög góðri viðloðun við aðra plastmálningu. Terpentína getur í sömum tilvikum veikt viðloðun gömlu málningarfilmunnar. Aftur á móti ef yfirborðið er duftkennt eftir hreinsun getur borgað sig að mála með terpentínuþynnalegri akrýlmálningu eins og Brynju (vörunr. 8820).

Til baka

Hvað er sementshúð og hvers vegna á að fjarlægja hana?

Sementshúð er þurrefnaríkt og duftkennd sementslag sem myndast yst á steinsteypu eftir lagningu hennar í mót. Nauðsynlegt er að fjarlægja alla sementshúð, þar sem lagið hefur lítinn innri styrk og flagnar að lokum af sjálfri steypunni. Lagið flagnar af við almenna veðrun. Hægt er að fjarlægja sementshúð með rifefna blæstri, vatnsháþrýstiblæstri eða með saltsýruþvotti.

Til baka

Viður og trévirki

Af hverju er svona mikilvægt að viður skuli vera undir 18 % við málun?

Það eru ýmsar ástæður fyrir því af hverju viður skal vera sem þurrastur við málun. Þumalputtaregla segir að við 18 % raka byrja að myndast ákjósanlegar aðstæður fyrir margs konar sveppi, myglu og ýldu. Löng ending byggir m.a. á því hversu langan tíma timbrið er yfir 18 % raka. Lokuð málningarfilma tefur þurrk á blaut timbri. Jafnframt ber að hafa í huga að skilyrði fyrir myndun viðloðunareiginleika filmunar skerðast. Timbur sem er mettað af vatni er ólíklegra að draga til sín smjúgandi bindiefni málningar. Blautur viður, sem er þrútinn af vatni, getur valdið stressi á málningarfilmuna við þornun. Raki getur valdið möttun á málningarfilmunni.

Til baka

Af hverju skal fjarlægja gráma, myglu og mosa?

Grámi er dauður viður sem sólarljós hefur brotið niður og hefur mismunandi góða viðloðun við lifandi viðinn. Að mála yfir slíkt getur skaðað talsvert viðloðunareiginleika málningarkerfisins. Það sama gildir og að mála yfir óhreinindi eins og myglu og mosa. En þar bætist einnig við sú hætta að mygla, mosi og ýlda geta byrjað að hrjá viðinn undir málningarfilmunni þegar ákjósanlegar aðstæður skapast.

Til baka

Hvernig er best að mála glugga og sér í lagi botnlista?

Málning byrjar oftast að flagna af botnlistunum. Ástæðan er sú að þessi hluti gluggans verður fyrir meira vatnsálagi en aðrir. Bestur árangur næst með að mála hrjúfan, þurran og hreinan við, ásamt því að tryggja að sem allra minnst vatn nái að liggja á listanum. Nokkrar einfaldar vinnuaðgerðir til að minnka líkur á flögnun eru...

  • Slétta vel út sílikon við glugga.
  • Tryggja að sílikon smitist ekki út á listann.
  • Hafa góðan halla út á botnlistanum!
  • Timbrið skal vera þurrt við málun!
  • Hrjúfa hörð og slétt yfirborð með sandpappír. Hrjúfa út frá 45 ° horni frá viðarlínum.
  • Nota Viðar grunnvörn 2415 á enda, hægt að sleppa ef timbrið er mjög hart og feitt.
  • Grunna með Viðar grunnmálningu 2420.
  • 2-3 umferðir af Viðar eða Hjörva 30.

Til baka

Þök

Þarf virkilega að þvo þök fyrir málun?

Já, hreinsun er mjög mikilvæg. Áhrifaríkast er að þvo flötinn með þar til gerðu hreinsiefni og háþrýstiþvotti, því þá næst auðveldlega í burt ryk, sölt og olíur. Til dæmis fjarlægir olíuhreinsir valsaolíu á nýju bárujárni. Olíur og fitur geta skert verulega viðloðun efna og þá sérstaklega vatnsþynnanlegra efna.

Vatnsuppleysanleg óhreinindi mynda raflausn með vatni sem hvatar tæringu. Mjög mikilvægt er að þvo slík efni í burt. Ef málað er yfir sölt þá kalla slík efni á vatn í gegnum málningarfilmuna og getur í slæmum tilvikum skapað blöðrumyndun eða skert viðloðun. Málningarnotkun getur aukist þar sem meiri máling fer í að væta upp þurr óhreinindi.

Góð hreinsun lengir verulega endingu málningarkerfis!

Til baka

Er nauðsynlegt að grunna þök fyrir málun?

Já, góðir grunnar skipta lykilmáli í góðu málningarkerfi. Þeir þurfa að ná sem bestri viðloðun við slétt yfirborðið. Jafnframt þarf hann að vera lokaður, hafa mikla ryðvarnareiginleika og þola basískt yfirborð. Grunnur hjálpar til við að ná réttri þurrfilmuþykkt á málminn.

Til baka

Húsið mitt var málað fyrir fjölda ára með olíuþakmálningu. Nú er hvít duftkennd slikja yfir þakinu. Hvað er þetta, á að fjarlægja þetta og hvernig skal grunna yfir þetta?

Alkýðolíumálning á það til að kalka með aldri og myndar duftkennt yfirborð. Sólarljós brýtur niður ysta lag bindiefnisins og myndar hvítleitt duft. Slíkt yfirborð getur verið erfitt að mála. Háþrýstiþvottur og basísk hreinsiefni virka vel til að fjarlægja slíka kölkun. Síðan skal bletta og heilgrunna með Þakgrunni (vörunr. 1387).

Til baka

Hvaða máli skiptir þurrfilmuþykkt málningar með tilliti til endingar á galvanhúðuðu bárujárni.

Filmuþykkt skiptir höfuðmáli í endingu málningarkerfis. Filmuþykkt skal vera sem þykkust og jöfnust yfir flötinn. Erfitt er að segja til um hversu mikil þykktin eigi að vera, þar sem tæringarálag og umhverfisþættir skipta miklu máli. Það er t.d. mun meiri tæring niðri í miðbæ Reykjavíkur en ofarleg í Breiðholtinu. Þurrfilmuþykkt skal þó aldrei vera minni en 80 - 100 mikron.

Þegar sink tærist myndast hvít tæringarútfelling. Ef málningarfilman er of þunn getur tæring á sinkinu átt sér stað og þessi útfelling byrjað að koma í gegnum filmuna. Þessar útfellingar geta verið mjög hvimleiðar og ljótar ásýndum. Nægileg þykkt af málningunni kemur í veg fyrir þetta vandamál.

Þess ber þó að gæta við málun að bera ekki of þykkt á í einu svo að málning nái að leka mikið niður í lágbáru.

Til baka

Málmar

Hvernig á að grunna svart stál?

Eldhúð er dökkleitt járnoxíðefni, sem myndast við framleiðslu á stáli. Það er afar mikilvægt að fjarlægja hana fyrir málun eða áður en stálið er tekið í notkun. Fyrir því eru tvær ástæður.

Eldhúð bregst ekki eins við hitaþenslu og stálið. Eldhúð getur því flagnað af stálinu við hitasveiflur og tekið með sér alla málningu sem er föst við húðina.

Eldhúð er katóða á stál og þar sem húðin er göfugra tærir hún stálið. Þetta er svokölluð tvímálmavirkni, alveg eins og kopar tærir stál eða stál tærir sink. Eða í stuttu máli þá fórnar stálið sér fyrir eldhúðina.

Fyrsta verk skal því vera að fjarlægja eldhúðina af stálinu!

Til baka

Ég lét sandblása járnfestingu á fánastöng. Síðan festi ég stöngina með hágæða koparboltum og málaði allt vel og vandlega. Nokkrum vikum seinna er byrjað að koma fram ryð. Hvað er að gerast og hvað á ég að gera?

Þetta stafar af tvímálmvirkni. Kopar er hærri í spennuröðinni en járnið í festingunni og tærir því járnið. Það þarf því að fjarlægja koparboltana og velja bolta sem eru úr efni sem er líkara járninu í festingunni.

Til baka

Innimálun

Hver er munurinn á málningu með hreinum akrýl og PVA?

Málning með hreinan akrýl er almennt séð mun betri og sterkari málning en PVA (PolyVinylAsetat) málning. Dæmir um eiginleika sem akrýlmálning hefur fram yfir...

  • Hún hefur meiri viðloðun við flötinn, þar sem raki og bleyta. Þannig að akrýlmálningarefni hafa meira þol gagnvart blöðrumyndun, sprungumyndun og flögnun.
  • Hún hefur meira vatnsþol, sem hindrar blöðrumyndun.
  • Hún er ekki eins skítsælin og hefur meira þol gagnvart myglu og ýldu.
  • Hún er basaþolnari, þ.e.a.s. þolir alkalískar aðstæður mun betur, t.d. þvott með basískum hreinsiefnum.
  • Hún hefur meira þol gagnvart útfjólubláum geislum og sólarljósi. Það gefur betri litheldni og minni kölkun.

Til baka

Er hægt að mála flísar?

Já, það er hægt að mála flísar með góðum árangri. Lykillinn að velgengni er að hreinsa flísar afar vel fyrir málun. Síðan er hægt að nota epoxý grunn, líkt og EPX-V sem er vatnsþynnanlegt epoxý. Það skiptir miklu máli að hreinsa flísarnar mjög vel með hreinsiefnum og matta þær síðan eins og hægt er.

Til baka

Af hverju er loftmálning höfð mött og ljós?

Það eru nokkur atriði sem nefnd eru til að hafa ljósa og matta málningu í loft. Eitt er það að ljós litur virðist stækka herbergi og mattleiki felur betur allar misfellur o.þ.h. Jafnframt hindrar hann að litir og ljós spegli í loftinu. Fólk vill kannski ekki bleik loft þó þau eigi rauðan sófa.

Til baka

Hver er munurinn á staðallit og stofna lit?

Staðallitur er sá sem er litaður í framleiðsluferlinu og er því ekki litaður í litavél við afhendingu. Slíkir litir dekka yfirleitt vel. Stofnar eru litaðir í litavél við afhendingu málningar. Hjá Slippfélaginu eru A, B, og C stofnar. Þar sem A er hvítastur og C er með enga hvítu. Litir litaðir úr stofni er ekki hægt að skila, svo mikilvægt er að búið sé að velja liti vel og vandlega áður en hann er blandaður.

Til baka

Einhver sagði mér að betra væri að mála með olíumálningu, þar sem lyktin væri vond en myndi hverfa fyrr en lyktin af plastmálningu. Er þetta rétt?

Nei, þetta er ekki rétt. Í það minnsta er innanhúsmálningin frá Slippfélaginu hönnuð til að vera afar lyktarlítil og úr umhverfisvænum hráefnum.

Til baka

Af hverju að nota plastmálningu, eins og Bett og Hemukrýl, í staðinn fyrir gamaldags olíumálningu?

Notkun alkýðolíuefna hefur dregist mjög saman undanfarin ár. Ástæðan er að betri og sterkari umhverfisvæn vatnsþynnanleg efni hafa komið fram, líkt og Bett og Hemukrýl. Afar góð reynsla er komin á Bett og Hemukrýl akrýlmálningar við fjölbreyttar íslenskar aðstæður.

Dæmi um hvað vatnsþynnanleg akrýlmálning, eins og Bett og Hemukrýl, hafa fram yfir olíuefnin.

  • Efnaþolnari (Sýrur, basa og þvottaefni o.s.frv).
  • Höggþolnari (Alkýð efnin eru eitthvað harðari en akrýlmálning þarf mun meira högg til þess að springa).
  • Verða ekki stökkt með aldri eins og olíuefnin.
  • Gulna ekki og hafa meira veðrunarþol.
  • Innihalda sérstök myglu, sveppa- og bakteríusæfiefni og þá sér í lagi Hemukrýl. Efnin henta þar sem mikill raki er og krafa um þvottheldni.
  • Þurrktími mun styttri.
  • Engin terpentínu- eða jurtaolíulykt. Því er hægt að nota akrýlmálningu á staði þar sem engin lykt má finnast, t.d. í skólum, sjúkrahúsum, elliheimilum og við matvælavinnslu.
  • Olíuefni geta í sumum tilvikum valdið ofnæmisviðbrögðum hjá viðkvæmu fólki.
  • Mun umhverfisvænna og minna álag á umhverfið!

Til baka

Að mála baðkar !

Þegar baðkar eru framleidd, er ekki gert ráð fyrir að þau séu máluð.  Á þeim er gljáhúð (emilering), sem á að hrinda öllu frá sér. Með réttum málningarefnum er þó hægt að komast fram hjá þessari hindrun.

Til að byrja með þarf að þrífa baðkerið með fituhreinsi (Delfin fettlösare). Hann er borinn á með uppþvottabursta. Mikilvægt er að allir fletir fái þessa meðferð. Fituhreinsinn má blanda 1:1, allt eftir því hve flöturinn er fitugur. Fituhreinsinn má nota óþynntann. Hann er borinn á með bursta, látinn liggja á í 15 mínútur, og síðan skolaður vel af með hreinu vatni. Kerið er síðan þurrkað með hreinni tusku. Að því loknu er, til að tryggja viðloðun, karið slípað með sandpappír af grófleika 180-220. Allt ryk er síðan fjarlægt vandlega með ryklút.
Næst er að grunna karið. Til þess er notaður tveggja þátta epoxy-grunnur ( HMP Light primer nr. 4555 ). Hann bindur sig vel við gljáhúðina, auk þess að tryggja viðloðun lakksins. Nauðsynlegt er að þynna grunninn, 5-10%, með þynni númer 0845. Með því næst gott flot í efnið og slétt áferð.

Þá er komið að lökkun. Til þess er notað Poly Best, tveggja þátta pólýúreþan lakk, vörunúmer 5555. Það má þynna 5-10%, með þynni númer 0871. Tvær umferðir eru nauðsynlegar, en þrjár ennþá sterkari.  Yfirmálunartími milli grunns og lakks er lágmark 4 klst. en hámark 3 dagar. Lágmarks yfirmálunartími milli lakkumferða er 16 klst., hámarkstími 5 dagar. Til að ná betri áferð er gott að slípa á milli umferða með mjög fínum sandpappír af grófleika. 400. Allt ryk er síðan fjarlægt vandlega með ryklút.
Það er nauðsynlegt að hafa í huga, að bæði þessi efnin eru mjög lyktarsterk. Því er ráðlegt að hafa kolagrímu fyrir vitum, þegar verkið er unnið. Þá er nauðsynlegt að hafa glugga opna.     
Þegar lakkið er þornað er baðkarið fyllt af köldu vatni  og það látið standa í 1. klst.  Eftir það er karið tilbúið til notkunar.

Þetta málningarkerfi hefur dugað vel á plastbáta og heita potta um árabil og er eina kerfið, sem Slippfélagið þorir að mæla með á baðkör.

Til baka

Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255