Leita
Forsíða > Húsadeild > Litir > Viðarvörn > Viðar þekjandi
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Litir
Innanhús
Utanhús
Viðarvörn
Verklýsingar
Spurt og svarað
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Litir og lita-samsetningar. Málun viðs utanhús. Spurningar og svör.

Litir og Viðar þekjandi

Viðar þekjandi er seigfljótandi viðarvörn gerð úr mjúku alkýðbindiefni. Málningin er létt í vinnslu, flýtur vel og myndar þekjandi filmu án þess að viðarmynstrið tapist. Málningin er til í nokkrum staðallitum og einnig er hægt að lita í litavél.

Litirnir í litakortum okkar eru fengnir úr litakorti náttúrunnar. Við vonum að það geti orðið þér að liði við val á litum á húsið þitt.

Til að auðvelda litaval er hægt að fá litlar handhægar litaprufur og prufudósir í öllum litum. Þannig er hægt að prófa hinar og þessar litasamsetningar

Hugmyndin að mála þýðir yfirleitt að velja liti. Það er skemmtilegt og spennandi viðfangsefni fyrir sköpunargáfu og hugmyndaflug. Þá reynir það ekki síður á dómgreind og tillitssemi. Sérstaklega á þetta við þegar valdir eru litir utanhúss. Hús er hluti af stærri heild. Lóðin, gatan og landslagið hafa ákveðin einkenni í byggingarstíl og litasamsetningu. Nýr litur hefur alltaf áhrif á heildarmyndina, reyndar mismikil.

Úti í náttúrunni skynjum við litina sem samræmda heild. Birtuskilyrðin valda því, að ýmist eru litirnir jafn tærir eða jafn muskaðir og það er þetta atriði sem hefur mest að segja þegar allt kemur til alls. Það er ekki aðalatriðið hvort liturinn sem valinn er á húsið er gulur, rauður, grænn eða blár, heldur er það samræmið í litbrigðunum sem hefur mest áhrif. Aðallitirnir í náttúrunni eru ekki skýrir, það eru hinir, þessir smáu sem eru bæði skýrir og litsterkir. Líta verður á lit hússins sem aðallit og hann þarf að vera í samræmi við umhverfið svo hann falli að því.

Með réttum litbrigðum myndar húsið góðan bakgrunn fyrir litsterku smáatriðin sem eru t.d. blóm, útihúsgögn, sólhlífar o.fl. Vegnar stærðar verður það alltaf áberandi, þó hófs sé gætt í litastyrk.

   
   

Litir úr Viðar þekjandi litakorti

7009
7037
7034
     
7029
7010
7035
     
7047
7017
7051
     
423
425
483

Þessi litasýnishorn eiga aðeins að vera lítið sýnishorn af öllum þeim fjölda af litum sem Slippfélagið býður. Litir geta birst mismunandi á mismunandi skjám og við prentun. Litur á skjánum getur táknað fleiri en einn lit. Framleiðandi vekur athygli á því að ábyrgð hans takmarkast við framleiðslugalla en nær ekki til tjóns vegna rangrar meðhöndlunar eða utan að komandi  aðstæðna.

Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255