| Gömul lituð klæðning, sem hefur dökknað með árunum, getur orðið ósköp dapurleg. Það er ekki nauðsynlegt að mála með þekjandi efni til að lýsa hana upp. |
|
Eftir vandlega hreinsun og burstun er klæðningin grunnuð með Viðar grunnmálningu, hvítri eða gulri, allt eftir því hver yfirliturinn á að vera. |
|
Þegar grunnurinn er þornaður er haldið áfram eins og um nýjan við væri að ræða. Með þessari aðferð er hægt að halda í viðaráferðina. |