|
Utanhús
Litirnir í litakortum okkar eru fengnir úr litakorti náttúrunnar. Við vonum að það geti orðið þér að liði við val á litum á húsið þitt.
Til að auðvelda litaval er hægt að fá litlar handhægar litaprufur og prufudósir í öllum litum. Þannig er hægt að prófa hinar og þessar litasamsetningar
Hugmyndin að mála þýðir yfirleitt að velja liti. Það er skemmtilegt og spennandi viðfangsefni fyrir sköpunargáfu og hugmyndaflug. Þá reynir það ekki síður á dómgreind og tillitssemi. Sérstaklega á þetta við þegar valdir eru litir utanhúss. Hús er hluti af stærri heild. Lóðin, gatan og landslagið hafa ákveðin einkenni í byggingarstíl og litasamsetningu. Nýr litur hefur alltaf áhrif á heildarmyndina, reyndar mismikil.
 |
Úti í náttúrunni skynjum við litina sem samræmda heild. Birtuskilyrðin valda því, að ýmist eru litirnir jafn tærir eða jafn muskaðir og það er þetta atriði sem hefur mest að segja þegar allt kemur til alls. Það er ekki aðalatriðið hvort liturinn sem valinn er á húsið er gulur, rauður, grænn eða blár, heldur er það samræmið í litbrigðunum sem hefur mest áhrif. Aðallitirnir í náttúrunni eru ekki skýrir, það eru hinir, þessir smáu sem eru bæði skýrir og litsterkir. Líta verður á lit hússins sem aðallit og hann þarf að vera í samræmi við umhverfið svo hann falli að því. |
Með réttum litbrigðum myndar húsið góðan bakgrunn fyrir litsterku smáatriðin sem eru t.d. blóm, útihúsgögn, sólhlífar o.fl. Vegnar stærðar verður það alltaf áberandi, þó hófs sé gætt í litastyrk.
Nokkrar vinsælar litasamsetningar utanhúss
Þessi litasýnishorn eiga aðeins að vera lítið sýnishorn af öllum þeim fjölda af litum sem Slippfélagið býður. Litir geta birst mismunandi á mismunandi skjám og við prentun. Litur á skjánum getur táknað fleiri en einn lit. Framleiðandi vekur athygli á því að ábyrgð hans takmarkast við framleiðslugalla en nær ekki til tjóns vegna rangrar meðhöndlunar eða utan að komandi aðstæðna.
|