Leita
Forsíða > Húsadeild > Litir > Viðarvörn > Athyglisverð ráð
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Litir
Innanhús
Utanhús
Viðarvörn
Verklýsingar
Spurt og svarað
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Litir og lita-samsetningar. Málun viðs utanhús. Spurningar og svör.
Athyglisverð ráð

Viðarlínan frá Slippfélaginu í Reykjavík er hágæða viðarvörn gerð úr sérvöldum hráefnum, með það í huga að gefa sem mesta endingu miðað við íslenska veðráttu. Hægt er að fá viðarvarnir í fjölda litum og litbrigðum.

Þegar kemur að því að velja liti þarf að hafa það í huga að litir eru misendingagóðir. Litir eru til dæmis misjafnlega viðkvæmir fyrir sólarljósi og útfjólubláum geislum sólar. Í litakerfi Slippfélagsins eru litir sérstaklega merktir með tilliti til endingar.

Ráð við málun viðs.

Andstæðurnar í veðurfarinu í okkar heimshluta eru mjög krefjandi fyrir allt byggingarefni. Viður er ákaflega fallegt en viðkvæmt byggingarefni sem taka verður mikið tillit til þegar viðhald er annars vegar. Eftirfarandi skiptir máli varðandi áferð, lit og gljáa þegar viður er málaður.

  • Það er mikilvægt að viður standi ekki lengi óvarinn. Annars er hætta á að hann gráni. Ef viður gránar þarf að fjarlægja gráma t.d. með slípun.

  • Viður skal vera þurr og hreinn við málun.

  • Viður er mismunandi hvað varðar mettun. Ef viðurinn er sjúgandi getur verið nauðsynlegt að metta hann með Viðar grunnvörn eða grunna fyrst með glærum Viðar hálfþekjandi. Litur og gljái getur haft mismunandi blæbrigð ef flöturinn sjúgandi.

  • Það er góð vinnuregla að gera prufu á einu borði í klæðningunni, til að sannreyna hvort áferð og litur, séu eins og var valið.

  • Ef of lítill litur er notaður í hálfþekjandi efni getur grámi byrjað undir filmunni og flögnun átt sér stað. Meiri filmuþykkt og litur gefur lengri endingu.

  • Athugið að litur dökknar við hverja umferð þegar málað er með hálfþekjandi efni. Þegar réttum lit er náð er hann látinn standa eða málað yfir með glæru til að auka þykkt. Hafi fyrri umferð gefið þann lit sem óskað er, skal sú seinni vera glær. Ef örlítið vantar upp á litinn eftir fyrri umferð er hægt að þynna litinn með glærum Viðar hálfþekjandi. Þess ber þó að geta að liturinn felur í sér vörn gegn sólarljósi.

  • Litur dökknar við hverja umferð sem máluð er. Ef menn vilja lýsa upp lit á gömlu yfirborði getur borgað sig að mála eina umferð með gulum Viðari hálfþekjandi og mála síðan yfir með þeim lit sem óskað er. Sjá nánar í umfjöllun í ,,Litasíðu - viðarvörn".

  • Málið fjöl fyrir fjöl til að fá jafna og fallega áferð.

  • Ef menn vilja lýsa upp lit getur borgað sig að mála eina umferð með gulum Viðari hálfþekjandi og mála síðan yfir með þeim lit sem óskað er.

  • Sé valinn bláleitur eða gráleitur litur, er mælt sterklega með að grunna með einni umferð af Viðar hálfþekjandi, hvítum til að koma í veg fyrir gulnun úr viðnum.

  • Sé um að ræða mjög illa farinn við er ráðlegt að skipta yfir í Viðar þekjandi eða grunnmála með Viðari grunnmálningu og mála síðan með Hjörva 30.

Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255