Leita
Forsíða > Fyrirtækið > Sagan
Fyrirtækið
Sagan
Opnunartími
Starfsfólk
Slippfélagið - Litaland
Samstarfsaðilar
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Botnmálning.
Daggarmarks- útreikningar.
Steinsteypa

Steypa og málning

Af hverju skal mála steinsteypu?

Steinsteypa eins og önnur efni mun að lokum gefa sig í baráttunni gegn náttúrunni. Hægt og sígandi virka margir samverkandi þættir sem verkfæri niðurbrots. Mætti þar nefna hitasveiflur, vind, vatn og koltvísýring í andrúmslofti.

Dæmi um niðurbrot á steinsteypu

Hitasveiflur valda þenslu og samdrætti í steypu. Við það geta myndast sprungur sem vatn getur sest inn í. Vindsveipir geta enn fremur hjálpað til að kasta vatni inn í sprungur. Steinsteypa er einnig gleypið efni sem sýgur til sín vatn. Ef vatn í steini frýs eykst rúmmál þess og ísinn getur sprengt steypuna en frekar. Vatn er mikilvægur þáttur í niðurbroti steinsteypu. Koltvísýringur og klóríð (salt) frá sjávarroki geta með tíma skemmt styrktarjárn í steypunni og þar með styrk byggingarinnar. Ýmis konar mengun getur einnig haft veruleg áhrif á endingu steins.

Hlutverk málningarefna

Til að reyna að koma í veg fyrir skemmdir á steinsteypu eru notuð ýmis konar yfirborðsefni, eins og sílanefni og málning. Þeirra varnarhlutverk felst í að hindra að skaðleg efni, eins og vatn, klóríð og koltvísýringur komist að steypunni og inn í hana.

Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255