Byrjið á því að verja gróður. Þar sem sveppamyndun og grámi er hafin þarf að hreinsa flötinn með klórblöndu, Alg & Mögeltvätt og skafa hann síðan vel. Fjarlægið fitu og ryk, svo viðloðun sé tryggð. |
Skolið vandlega með vatni og fjarlægið öll þvottaefni eins fljótt og auðið er. Garðslanga hentar vel til verksins. |
Fjarlægið lausa málningu með sköfu. Eldri málning verður að vera föst, því hún er í raun grunnur undir nýju málninguna. Sléttan við getur þurft ýfa upp með sandpappír. Viðurinn skal vera orðinn vel þurr fyrir málun! |
Grunnið beran við með Viðar grunnvörn og mettið endatré sérstaklega vel. Góð grunnvörn er lykilatriði fyrir endingargott kerfi. |