Leita
Forsíða > Húsadeild > Verklýsingar > Handbók heimilanna > Gluggar
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Litir
Verklýsingar
Steinn utanhúss
Viður utanhúss
Gifsveggir
Matvælafyrirtæki
Heimili
Annað
Spurt og svarað
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Litir og lita-samsetningar. Bæklingar og verklýsingar. Spurningar og svör.

Handbók heimilanna

Gluggar

Að halda gluggum í góðu ástandi, krefst mikillar samviskusemi og nákvæmni í vinnu og eftirliti. Gluggalistar eru í mikilli hættu, því vatn getur komist að viðnum eftir mörgum leiðum. Botnlistar og sér í lagi endar þeirra eru viðkvæmastir, þar sem vatn getur legið á listanum. Þá þarf að fylgjast vel með kítti við rúður og að nægur halli sé til að vatn nái að renna af. Sé þetta ábótavant verður viðurinn með tímanum gegnsósa af vatni og það er peninga- og tímasóun að mála hann þannig. Mjög mikilvægt er að viðurinn sé þurr við málun!

 

 

Svona gerum við

Gluggarnir þurfa að vera fitulausir, hreinir og þurrir. Fjarlægið alla lausa málningu og sprungið og laust kítti. Slípið niður ójöfnur, gráma og hvassar brúnir og hrjúfið slétt yfirborð. Mikilvægt er að vatn nái ekki að mynda polla.

Hreinsið vel alla bera fleti og mettið sjúgandi fleti með Viðar grunnvörn. Grunnvörnin smýgur djúpt inn í viðinn. Í grunnvörninni eru efni sem hindra fúamyndun.

Blettið og grunnið með Viðar grunnmálningu. Hún myndar viðloðun fyrir yfirmálninguna og hindrar auk þess fúamyndun. Eldri málning verður að vera vel föst.

Sprungur og samskeyti skulu lagfærð með Alcro Latexfog, en það er akrýlkítti sem má mála yfir.

Viðarvörn
Viðar grunnvörn er mjög mikilvægur hluti af málningarkerfi á við. Það smýgur vel inn í viðinn og myndar góða grunnvörn og vatnsvörn. Þurrktími og yfirmálun er eftir 24 klst. Efnisnotkun er 4-5 m²/l.
Viðar pallaolía er alhliða línolíuviðarvörn sem smýgur vel. Efnisnotkun er 10-15 m²/l.
Viðar grunnmáling er alkýðolíugrunnur sem inniheldur viðarvarnarefni. Efnisnotkun er 6-10 m²/l og þurrktími er 12 klst en yfirmálun er eftir 24 klst.
Viðar þekjandi er viðarvörn sem er auðveld í notkun og myndar þekjandi filmu án þess að viðarmynstur tapist. Þurrktími er 12-16 klst og yfirmálun þegar fyrri umferð er þurr.
Viðar hálfþekjandi er sambærilegt efni og Viðar þekjandi að öðru leyti en því að viðaræðarnar sjást í gegn. Þurrktími er 12-24 klst en yfirmálun er eftir 24 klst. Efnisnotkun þessara efna er 5-8 m²/l á óheflaðan við og 9-11 m²/l á heflaðan við.
Hjörvi 30 er fjölnota vatnsþynnanleg akrýlmálning, með mikið veðrunarþol, einkum ætluð á grunnmálaðan við. Efnisnotkun er 6-8 m²/l og yfirmálun þegar fyrri umferð er þurr.
Strjúkið yfir kíttið með kíttisspaða til að fá jafna áferð. Dýfið spaðanum við og við í vatn til þess að minnka viðloðun kíttisins við spaðann.
Málið tvær umferðir með Viðar þekjandi eða Hjörva 30 (þrjár umferðir á botnlista). Málið tvo mm inn á glerið. Málningarbletti má fjarlægja strax með tusku eða glersköfu þegar málningin er þornuð.
Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255