Notið viðeigandi hreinsiefni til að fjarlæga öll óhreinindi sem gætu skert viðloðun. Olíuhreinsir hentar til að fjarlægja fitu og valsaolíu af sink- og álklæðningum. Basísk þvottaefni líkt og Málningarhreinsir hentar til að þrífa yfirborð litaðra klæðninga og olíumálningar. |
Skola þarf öll hreinsiefni vel í burt með vatni. Þvottur með háþrýstidælu er áhrifaríkur, en vinnur ekki á fitu einn og sér. Skafið í burt allt laust yfirborð. Flöturinn þarf að vera hreinn og fitulaus fyrir málun. |
Sé ryðmyndun hafin skal fjarlægja ryð með vírbursta eða flókaskífu. Síðan skal bletta vandlega með menju eða þakgrunni. |
Áður málað: Blettið bera fleti með Hempel þakgrunni. Ef um er að ræða kalkað yfirborð þarf að heilgrunna. Upplituð klæðning eða kölkuð olíumálning: Þvottur með basískum Málningarhreinsi. Bletta og heilgrunna með Þakgrunni. |
|
|
| Hjörvi - þakgrunnar |
Hjörvi 30 er vatnsþynnanleg hálfmött akrýlmálning með mikið veðrunarþol ætluð á við, galvanhúðað járn, litaðar klæðningar og ál utanhúss, bæði við ný- og endurmálun. Efnisnotkun er 8 m²/l og yfirmálun er þegar fyrri umferðin er þurr.
Hjörvi 50 er vatnsþynnanleg, hálfgljáandi akrýlmálning, einkum ætluð á galvanhúðað járn, álsink, litaðar járnklæðningar og ál utanhúss bæði við ný- og endurmálun. Efnisnotkun er 10 m²/l og yfirmálun er eftir 6 klst.
Hemukrýl bitgrunnur er vatnsþynnanlegur lyktarlaus viðloðunargrunnur á ál og aðra léttmálma, inni sem úti. Efnisnotkun er 19 m²/l og yfirmálun er eftir 2 klst, miðað við 20 °C, ef málað er með Hjörva.
Hempels þakgrunnur er fljótþornandi ryðvarnargrunnur. Efnisnotkun er 8 m²/l og yfirmálun mismunandi eftir því hvaða efni eru notuð í lokaumferð.
Hempel sinkgrunnur 1649 er mjög fljótþornandi einþátta epoxýgrunnur með hreinu sinki. Grunnurinn hentar til blettviðgerða á galvanhúðuðu bárujárni. Efnisnotkun er 10 m²/l. |
|