Mikilvægt er að fletir sem eru málaðir séu þurrir og hreinir. Fitu og mikil óhreinindi þarf að þrífa burt með málningarhreinsi. |
Fjarlægið lausa málningu og spartlið sprungur með Breplasta LF, LH eða LG. Pússið með sandpappír nr. 100. |
Loft: Málið tvær umferðir með Bett 3. |
Notið góðan pensil í kverkar við lista og rafmagnsdósir. Þar sem erfitt er að komast að kemur ofnarúlla að góðu gagni. Athugið að nota aldrei einnota pensla. |