Leita
Forsíða > Húsadeild > Verklýsingar > Handbók heimilanna > Gólf
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Litir
Verklýsingar
Steinn utanhúss
Viður utanhúss
Gifsveggir
Matvælafyrirtæki
Heimili
Annað
Spurt og svarað
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Litir og lita-samsetningar. Bæklingar og verklýsingar. Spurningar og svör.

Handbók heimilanna

Gólf

Þegar gólf eru máluð er gott að hafa í huga, að ekki er þörf á málningu með sama styrkleika, þegar annars vegar er málað gólf í tómstundarherbergi og hins vegar gólf á vélaverkstæði. Sterkustu gólfmálningarkerfin eru yfirleitt mjög lyktarsterk og innihalda leysiefni sem geta valdið ofnæmi. Þau efni eiga að sjálfsögðu ekki við í íbúðarhúsnæði eða á almennum vinnustöðum.

Slippfélagið býður margar gerðir af vatnsþynnanlegum gólfmálningartegundum sem hafa síst minni slitstyrk en olíuefni. Þau hafa marga kosti fram yfir olíuefnin og má þar nefna minni lykt, auðveldari þrif og minna slit á verkfærum.

Golvakrylat er eitt af fjölmörgum gólfefnum Slippfélagsins. Það er mjög lyktarlítið, fljótþornandi og hentar því sérlega vel í heimahúsum. Það er ekki ætlað til notkunar þar sem vatnsflæði er mikið og þá ekki í bílageymslum. Í þeim tilfellum býður Slippfélagið tveggja þátta vatnsþynnt og lyktarlítið epoxýefni, sem nefnist EPX-V.

 

 

Svona gerum við

Áður málað gólf: Fjarlægið lausa málningu með stálbursta og sköfu. Þvoið gólfið með olíuhreinsi. Skolið vel á eftir með vatni. Glansandi fleti þarf að matta með sandpappír nr. 120. Hreinsið vel eftir á.

Nýtt steingólf: Yfirborðið þarf að vera fast viðkomu. Sannreynið þetta með eggjárni. Sementshúð skal fjarlægja, t.d. með saltsýrublöndu. Skolið með vatni. Gólfið þarf að þorna 1-2 daga. Ryksugið.

Málið tvær umferðir með Golvakrylat eða EPX-V. Þynnið fyrstu umferðina ef um er að ræða sjúgandi flöt. Notið perlonrúllu eða lakkpensil. Gólfhiti má ekki vera undir +10 °C.

Flögugólf: Þegar liturinn er orðinn þurr, rúllið u.þ.b. þriggja metra langan og tveggja metra breiðan flöt af glæru Golvakrylati eða EPX-V.

Golvakrylat og EPX-V

Golvakrylat er hálfgljáandi vatnsþynnanleg akrýlgólfmálning ætluð á stein- og trégólf innanhúss, þar sem krafist er málningar með meðalgott slitþol. Golvakrylat er svo til lyktarlaus, auðvelt í notkun og þornar fljótt. Efnisnotkun er 6-8 m²/l. Yfirmálun er eftir 3 klst.

Golvakrylat klarlack er gljáandi, vatnsþynnanlegt glært lakk til notkunar þar sem krafist er málningar með meðalgott slitþol. Efnisnotkun er 5-7 m²/l og yfirmálun er eftir 8 klst.

EPX-V golvfärg er hágljáandi, tveggja þátta, vatnsþynnanleg epoxýgólfmálning. Ætlað á steingólf innanhúss, þar sem krafist er mikils álagsþols og lítillrar lyktar. Efnisnotkun er 7-14 m²/l. Yfirmálun er eftir 6 klst.

EPX-V klarlack er glært, hágljáandi, tveggja þátta, vatnsþynnanlegt epoxýlakk til notkunar þar sem krafist er mikils álagsþols. Efnisnotkun er 7-14 m²/l og yfirmálun er eftir 16 klst.

Stráið síðan flögum í flötinn meðan hann er blautur. Eigi flögurnar að fá góða dreifingu, kastið þeim hátt yfir gólfið. Jafnið út flögurnar með því að rúlla yfir eftir dreifingu.
Slitlagið: Málið tvær umferðir með glæru Golvakrylati eða EPX-V. Gætið þess vel að hafa hitastig vel yfir +10°C.
Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255