Leita
Forsíða > Húsadeild > Verklýsingar > Handbók heimilanna > Góð ráð
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Litir
Verklýsingar
Steinn utanhúss
Viður utanhúss
Gifsveggir
Matvælafyrirtæki
Heimili
Annað
Spurt og svarað
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Litir og lita-samsetningar. Bæklingar og verklýsingar. Spurningar og svör.

Handbók heimilanna

Góð ráð

Það borgar sig að hafa vaðið fyrir neðan sig áður en hafist er handa. Góður undirbúningur og vönduð undirvinna er það sem öllu máli skiptir ef vel á að takast. Hjá Slippfélaginu og umboðsmönnum þess um allt land má alltaf fá faglegar ráðleggingar um einstaka þætti vinnunnar svo sem efnisval, meðferð efnis, litaval o.fl.

 

 

Svona gerum við

Farið varlega þegar unnið er í stiga. Notið aðeins traustbyggða stiga og festið ykkur við öryggislínu ef unnið er upp á þaki.

Forðist að mála í glampandi sól. Besta málningarveðrið er þurrt og sólarlaust veður. Hitastig þarf að vera yfir +7° C.

Einnota verkfæri skila sjaldnast góðum árangri. Notið vönduð áhöld og þrífið eftir notkun. Það er ódýrast.

Takið tilit til umhverfisins. Breiðið yfir gróður þegar málað er utan húss. Hellið aldrei niður málningarafgöngum, næsta gámastöð tekur við þeim.

Það getur auðveldað þér vinnuna ef þú þarft ekki að burðast með málningarfötuna í annarri hendi. T.d. er upplagt að nota S-laga króka undir föturnar.

Mikilvægt er að fletir sem málaðir eru séu þurrir og hreinir. Fitu og mikil óhreinindi þarf að þrífa með málningarhreinsi.

Vinnupallar, háþrýstidælur og önnur verkfæri er hægt að leigja á áhaldaleigum. Slippfélagið býður upp á Graco málningarsprautur.

Látið ekki of mörg ár líða á milli þess sem málað er. Þegar yfirborð byrjar á að springa eða flagna er kominn tími til að huga að málningarvinnu.

Ný steingólf þurfa að þorna í 1 mánuð áður málað er. Ef kalt er og rakt, getur þessi tími margfaldast. Límið plast 50 cm x 50 cm á gólfið. Ef flöturinn undir plastinu dökknar eftir 1 sólarhring, skal bíða með að mála.

Munið að lesa dósamiðana áður en dósin er opnuð. Aðgætið alltaf hvort liturinn í dósinni sé sá sem valinn var.

Hafið ávalt í huga að málningarvinna er iðngrein og það getur borgað sig að leita til fagmanna, ekki síst ef um vandasama viðgerðar- og málningarvinnu er að ræða.

Ekki vera feiminn að leita ráða hjá söluaðilum. Þeir hafa gaman að heyra í þér og láta ljós sitt skína.

Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255