Leita
Forsíða > Húsadeild > Verklýsingar > Handbók heimilanna > Böð, sturtuklefar og þvottahús
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Litir
Verklýsingar
Steinn utanhúss
Viður utanhúss
Gifsveggir
Matvælafyrirtæki
Heimili
Annað
Spurt og svarað
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Litir og lita-samsetningar. Bæklingar og verklýsingar. Spurningar og svör.

Handbók heimilanna

Gluggar, hurðir og húsgögn

Gömul húsgögn, hurðir og annað úr viði er hægt að gera sem nýtt. Allt sem þarf eru fyrsta flokks málningarefni og góð ráð frá Slippfélaginu. Slippfélagið býður upp á bæði vatns- og olíulökk. Þau eru til í gljástigum 30-90 og hægt er að fá lökkin í hundruðum lita. Hálfmött lökk gefa gamaldags áferð. Hágljáandi lökk eru sterk og gefa yfirborð sem auðvelt er að þrífa.

Þegar gamall viður er lakkaður, skiptir undirvinnan öllu máli, ef vel á að takast. Reikna má með að í undirvinnuna fari 9/10 hlutar tímans. Nú á tímum umhverfisverndar hafa vatnsþynnanleg lökk rutt sér til rúms í auknum mæli. Þegar notuð eru vatnslökk þarf að hafa eftirfarandi í huga:

  1. Þau þorna mun hraðar en olíulökk, sem þýðir að öll handtök þurfa að vera ákveðin og örugg. Hafið alltaf raka tusku við höndina.
  2. Hátt rakastig og lágt hitastig lengja þurrktímann og gera efni meðfærilegra.
  3. Í vatnsþynnanleg lökk þarf sérstaka pensla og rúllur.

 

 

Svona gerum við

Ómálaður viður: Slípið og þurrkið flötinn. Notið fyrst grófan sandpappír nr. 100-120 og síðan pappír nr. 180-240. Kvista þarf að bletta með Kvistalakki. Spartlið í allar ójöfnur. Þegar spartlið er þurrt, slípið með sandpappír nr. 240 og fjarlægið síðan rykið. Endurtakið þetta þar til flöturinn er algjörlega sléttur.

Fjarlægið fitu og óhreinindi með Málningarhreinsi eða sambærilegu efni. Skolið vel á eftir.

Mattið glansandi fleti. Fjarlægið alla lausa málningu. Spartla í ójöfnur með til þess gerðu spatli. Pússið spartlið með sandpappír nr. 240 og fjarlægið vandlega allt ryk.

Verksmiðjulakkaðir fletir, svo sem IKEA húsgögn, skal pússa með sandpappír nr. 240-300.

Lökk frá Alcro Beckers

Lackfärg halvmatt/högblank eru hálfmött og hágljáandi olíualkýðlökk. Þau eru seigfljótandi ("dropfri") sem þýðir að þau eru hlaupkennd í dósinni og leka nánast ekkert úr penslinum. Þau eru því sérstaklega auðveld í meðförum. Efnisnotkun er 8-10 m²/l, þurrktími er 5 klst og yfirmálun er eftir 16 klst.

Servalack halvblank er olíualkýðlakk með sömu eiginleika og Lackfärg. Efnisnotkun er 8-10 m²/l, þurrktími er 3 klst og yfirmálun er eftir 8 klst.

Aqua Snickerislip er vatnsþynnanlegur akrýl viðloðunar- og slípigrunnur,ætlaður til notkunar innanhúss við ný- og endurmálun. Grunnurinn er fljótþornandi og svo til
lyktarlaus, flýtur vel og er auðveldur í notkun. Efnisnotkun er 8-10 m²/l og yfirmálun er eftir 4 klst.

Aqua Lackfärg halvmatt/högblank eru vatnsþynnanleg akrýllökk. Þau eru fljótþornandi og svo til lyktarlaus, gulna ekki, fljóta vel, hafa góða viðloðun og eru létt í vinnslu. Efnisnotkun er 8-10 m²/l, þurrktími er 4 klst og yfirmálun er eftir 16 klst.

Málið tvær umferðir með Aqua Lackfärg vatnslakki sem getur líka verið grunnur. Einnig er hægt að nota Snickerislip sem grunn. Slípið á milli umferða.
Berið vel á. Hafið auga með taumum sem geta myndast á lóðréttum flötum. Þegar um stóra slétta fleti er að ræða, er best að nota filtrúllu og vatnsmálningar-pensil.
Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255