Leita
Forsíða > Húsadeild > Verklýsingar > Handbók heimilanna > Böð, sturtuklefar og þvottahús
Fyrirtækið
Skipa- og iðnaðardeild
Húsadeild
Litir
Verklýsingar
Steinn utanhúss
Viður utanhúss
Gifsveggir
Matvælafyrirtæki
Heimili
Annað
Spurt og svarað
Vöruleit
Umhverfismál
Verslanir

Tengt efni

Litir og lita-samsetningar. Bæklingar og verklýsingar. Spurningar og svör.

Handbók heimilanna

Böð, sturtuklefar og þvottahús

Þegar mála skal baðherbergi, sturtuklefa, þvottahús og aðra þá staði þar sem raki og bleyta er, þarf önnur málningarefni en þau sem eru sett í stofur og herbergi. Raki og bleyta veldur álagi á málninguna og skapar hættu á sveppamyndun og þess háttar.
Á svæðum sem myglu- eða ýldumyndun hefur orðið, þarf að þrífa vandlega með klórblöndu og skola vel á eftir. Til spörtlunar þarf rakaþolið spartl og til fyllinga og þéttunar í kverkum og samskeytum er notað rakaþolið kítti. Áður lakkaða fleti þarf að matta. Að lokum þarf þétta og sterka málningu sem þolir vatnsálagið og hindrar sveppamyndun. Hemukrýl lakkmálning myndar harða og sterka filmu með mikið viðnám gegn raka og bleytu. Jafnframt er í málningunni öflug mygluvarnarefni.

 

 

Svona gerum við

Mikilvægt er að fletir sem eru málaðir séu þurrir og hreinir. Sveppamyndun þarf að hreinsa með klórblöndu (Alg & Mögeltvätt).

Fjarlægið lausa málningu og gerið við sprungur. Spartlið með rakaþolnu spartli.

Þéttið kverkar og samskeyti með rakaþolnu kítti.

Grunnið með Hemukrýl lakkmálningu, þynntu 5-10% með vatni.

Hemukrýl lakkmálning

Hemukrýl er vatnsþynnanlegt akrýllakk (gljástig 30 og 90), sérstaklega ætlað til notkunar þar sem raki og bleyta eru. Í lakkinu eru efni sem hindra sveppamyndun (myglu). Efnisnotkun er 10 m²/l, þurrktími 1 klst og yfirmálun er eftir 6 klst.

Resistent spärrgrund er vatnsþynnanlegur akrýlgrunnur ætlaður þar sem mikill raki er. Hann er vatnsfráhrindandi og inniheldur efni sem hrinda sveppamyndun. Efnisnotkun er 4-7 m²/l og yfirmálun er eftir 3-6 klst. Sé grunnurinn ætlaður til að grunna rakadræga fleti er hann þynntur 1:1 með vatni.

Málið tvær umferðir með Hemukrýl lakkmálningu.  
Slippfélagið í Reykjavík, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, sími: 588 8000, fax: 568 9255